Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri - HSN Blönduós

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri - HSN Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir jákvæðu, ábyrgðarfullu og þjónustulunduðu starfsfólki í aðhlynningu og í býtibúr á hjúkrunarsvið. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, virðingu og góða þjónustu.

Starfið veitir gott tækifæri til að öðlast reynslu innan heilbrigðisþjónustu og þróa færni í samskiptum, teymisvinnu og sjálfstæðum vinnubrögðum. Unnið er í jákvæðu og styðjandi starfsumhverfi þar sem samvinna, traust og góð liðsheild eru í fyrirrúmi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við fagaðila

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga

  • Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með fólki

  • Reynsla af umönnun er kostur

  • Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni

  • Áreiðanleiki og sveigjanleiki

  • Góð íslenskukunnátta

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Viktoría Björk Erlendsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is

Sími: 432 4984

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri - HSN Blönduós

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026