Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Deildastjóri í heilsuvernd grunn- og framhaldskólabarna - HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026

Deildastjóri í heilsuvernd grunn- og framhaldskólabarna - HSN Akureyri

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir starf deildastjóra heilsuverndar grunn- og framhaldsskólabarna á Akureyri. Um er að ræða 80% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst.

Leitað er að hjúkrunarfræðingi með áhuga á forvörnum, heilsueflingu og þjónustu við börn og ungmenni. Deildastjóri leiðir starfsemi heilsuverndar í grunn- og framhaldsskólum og vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skóla, fjölskyldur og annað fagfólk.

Starfið felur í sér bæði faglega leiðsögn og stjórnun ásamt þátttöku í þróun þjónustunnar innan HSN. Áhersla er lögð á samvinnu, fagmennsku og jákvæð samskipti í daglegu starfi.

Heilsugæslustöðin á Akureyri er heilsueflandi vinnustaður og var HSN fyrsta heilbrigðisstofnun landsins til að hefja innleiðingu heilsueflandi vinnustaðar.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn | Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Hér má sjá upplýsingar um HSN Heilsueflandi Vinnustaður

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á heilsuvernd grunn- og framhaldsskólabarna á starfsvæði Heilsugæslunnar á Akureyri

  • Skipulag, þróun og eftirfylgni með þjónustu við skólabörn

  • Dagleg stjórnun starfsfólks og stuðningur við teymi

  • Fagstjórn í heilsuvernd grunn- og framhaldskóla þvert á HSN

  • Samskipti og samstarf við skóla, foreldra og aðra samstarfsaðila

  • Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi innan Heilsugæslunnar á Akureyri

  • Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð

  • Skráning, skýrslugerð og upplýsingamiðlun

  • Teymisvinna

  • Góð samvinna við fagaðila í heilsugæslu og skóla

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunar- og starfsleyfi

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg (s.s. á sviði stjórnunar, heilsugæslu eða lýðheilsu)

  • Reynsla af stjórnun kostur

  • Reynsla af heilsuvernd barna og unglinga kostur

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi

  • Mjög góð samskipta- og leiðtogahæfni

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Jákvæð reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

  • Íslenskukunnátta skilyrði og góð enskukunnátta

  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg S Ingimundardóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: ingibjorg.solrun.ingimundardottir@hsn.is

Sími: 432 4600

Ingibjörg Lára Símonardóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is

Sími: 432 4600

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Deildastjóri í heilsuvernd grunn- og framhaldskólabarna - HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026