Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfari - HSN Blönduós

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026

Sjúkraþjálfari - HSN Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í 100% starfshlutfall. Ráðningartími er samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf þar sem 60% eru á sjúkra- og hjúkrunardeild, 20% í heilsugæslu og 20% á hjúkrunarheimili. Starfað er í þverfaglegu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og góða þjónustu við skjólstæðinga.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Möguleiki er á aðstoð við húsnæði fyrir þau sem ekki eru þegar búsett á Blönduósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á þeirri sjúkraþjálfun sem veitt er og mat á árangri meðferðar

  • Skráning og skýrslugerð

  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda

  • Heimavitjanir og ráðgjöf

  • Mat á þörf fyrir hjálpartæki og hjálpartækjabeiðnir

  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi

  • Þátttaka í fagþróun

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

  • Bílpróf skilyrði

  • Góð íslenskukunnátta æskileg

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

  • Góð fagleg þekking

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Viktoría Björk Erlendsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is

Sími: 432 4984

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfari - HSN Blönduós

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026