
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar í heimahjúkrun HSN Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
30-100%
Starf skráð
04.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026
Sumarstörf - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar í heimahjúkrun HSN Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri óskar eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Ráðningartími er frá miðjum maí til 15. september 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Heimahjúkrun HSN veitir faglega, persónulega og heildstæða heilbrigðisþjónustu í heimahúsum skjólstæðinga. Lögð er rík áhersla á að styðja við sjálfstæði einstaklinga, auka lífsgæði þeirra og veita þjónustu af virðingu og umhyggju. Starfið er fjölbreytt og veitir dýrmæta reynslu í faglegu og styðjandi starfsumhverfi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn | Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Hér má sjá upplýsingar um HSN Heilsueflandi Vinnustaður
Helstu verkefni og ábyrgð
Vitjanir til skjólstæðinga í heimahúsum
Umönnun og stuðningur við skjólstæðinga með áherslu á sjálfstæði, öryggi og vellíðan
Samskipti og samstarf við aðstandendur skjólstæðinga
Þátttaka í teymisvinnu með sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum
Skráning og eftirfylgni samkvæmt gildandi verklagsreglum
Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi heimahjúkrunar
Hæfniskröfur
Fullgilt sjúkraliðapróf og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema
Bílpróf er skilyrði
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi í heimahjúkrun
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini, námsmat frá SLFÍ ef við á, og staðfesting á námi fyrir nema.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 30-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Lára Símonardóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is
Sími: 432 4600

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar í heimahjúkrun HSN Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
30-100%
Starf skráð
04.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026