Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar í heimahjúkrun HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

04.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar í heimahjúkrun HSN Akureyri

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri leitar að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Ráðningartími er frá miðjum maí til 15. september 2026 eða samkv. samkomulagi.

Heimahjúkrun HSN veitir faglega og persónulega þjónustu í heimahúsum, þar sem lögð er rík áhersla á sjálfstæði og að auka lífsgæði skjólstæðinga, náið samstarf við aðstandendur og sterka teymisvinnu. Starfið er fjölbreytt og veitir dýrmæta reynslu í faglegu og styðjandi starfsumhverfi þar sem þekking, frumkvæði og mannleg samskipti skipta miklu máli.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn | Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Hér má sjá upplýsingar um HSN Heilsueflandi Vinnustaður

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita faglega og einstaklingsmiðaða hjúkrunarþjónustu í heimahúsum skjólstæðinga samkvæmt gildandi verklagi og faglegum viðmiðum

  • Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra

  • Þátttaka í teymisvinnu með hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og öðrum fagaðilum

  • Skráningu og upplýsingamiðlun samkvæmt rafrænum sjúkraskrárkerfum og reglum HSN

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi heimahjúkrunar

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema

  • Bílpróf er skilyrði

  • Reynsla í heimahjúkrun æskileg

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi, prófskírteinum og staðfesting á námi fyrir hjúkrunarnema.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eva Björg Guðmundsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: eva.bjorg.gudmundsdottir@hsn.is

Sími: 863 7532

Ingibjörg Lára Símonardóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is

Sími: 432 4642

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar í heimahjúkrun HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

04.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026