Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemi í heimahjúkrun - HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Hjúkrunarnemi í heimahjúkrun - HSN Akureyri

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri óskar eftir metnaðarfullum hjúkrunarnema til starfa í heimahjúkrun. Leitað er að ábyrgum, jákvæðum og þjónustulunduðum nema sem hefur áhuga á einstaklingsmiðaðri hjúkrun og ánægju af því að vinna í þverfaglegu samstarfi. Um er að ræða 30-100% starf í vaktavinnu og er ráðningartími skv. samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða við upphaf hausts.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn | Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Hér má sjá upplýsingar um HSN Heilsueflandi Vinnustaður

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir heimavitjunum og faglegri hjúkrun skjólstæðinga í heimahúsum

  • Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra

  • Vinna í teymum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Staðfesting á hjúkrunarnámi

  • Hefur lokið fyrsta verknámi

  • Bílpróf er skilyrði

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af umönnun á hjúkrunarheimili eða í heimahjúkrun

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu

  • Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja staðfesting á námi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eva Björg Guðmundsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: eva.bjorg.gudmundsdottir@hsn.is

Sími: 863 7532

Ingibjörg Lára Símonardóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is

Sími: 432 4642

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemi í heimahjúkrun - HSN Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026