
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf - Móttökuritari HSN Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
26.06.2026
Sumarstarf - Móttökuritari HSN Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Fjallabyggð, óskar eftir jákvæðum, skipulögðum og þjónustulunduðum móttökuritara í sumarafleysingu á heilsugæslustöð á Siglufirði. Ráðningarhlutfall er 100% og ráðningatími er frá 1. júlí til mið ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefur góða innsýn í starfsemi heilsugæslunnar.
Á starfstímanum fær viðkomandi tækifæri til að vinna í faglegu og styðjandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, samstarf og vönduð vinnubrögð.
Hér má sjá upplýsingar um starfsstöð Dalvík- og Fjallabyggð
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka, tímabókun, afgreiðsla og uppgjör
Símsvörun
Póst og pakkadreifing
Skjalafrágangur
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Almenn enskukunnátta er skilyrði
Reynslu af afgreiðslustörfum/móttökustörfum er kostur
Grunnþekking eða reynsla af bókhaldi og uppgjöri er kostur
Mjög góð samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Almenn tölvukunnátta
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 432 4362

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf - Móttökuritari HSN Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
26.06.2026