Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sæborg Skagaströnd

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

24.07.2026

Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sæborg Skagaströnd

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Skagaströnd, Sæborg óskar eftir metnaðarfullum, ábyrgum og þjónustulunduðum sjúkraliða eða sjúkraliðanema til starfa við aðhlynningu og í býtibúr. Um er að ræða 40-100% starf í vaktavinnu á hjúkrunarheimili þar sem rík áhersla er lögð á hlýja, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fólki, býr yfir góðri samskiptahæfni og nýtur þess að vinna í fjölbreyttu starfsumhverfi. Mikilvægt er að geta unnið bæði sjálfstætt og sem hluti af öflugu teymi þar sem samvinna, virðing og fagmennska eru höfð að leiðarljósi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila

  • Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis

  • Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar

  • Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum stofnunarinnar

  • Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund

  • Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði

  • Frumkvæði, sveigjanleiki í starfi og sjálfstæð vinnubrögðum

  • Góð íslensku- eða enskukunnátta

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eydís Inga Sigurjónsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: eydis.inga.sigurjonsdottir@hsn.is

Sími: 453 4170

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sæborg Skagaströnd

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

24.07.2026