Fara beint í efnið

Sjúkrahótel og íbúðir

Sjúkrahótel er millistig milli sjúkrahúss og hótels. Þar dveljast sjúklingar í endurhæfingu og þeir sem þurfa heilsu sinnar eða aðstandenda vegna að sækja þjónustu utan heimabyggðar.

Sjúkrahótel og íbúðir ætlaðar aðstandendum

Sjúkrahótel Landspítala við Hringbraut er ætlað þeim sem heilsu sinnar vegna eða aðstandenda verða að dvelja fjarri heimili vegna meðferðar og rannsókna.

Hótelið nýtist líka sem liður í frekari endurhæfingu og bata þeirra sem verið hafa á sjúkrahúsi. Dvöl er háð tilvísun lækna og hjúkrunarfræðinga.

Landspítali hefur yfir að ráða nokkrum íbúðum sem sjúklingum utan af landi og aðstandendum þeirra standa til boða á höfuðborgarsvæðinu.

Barnaspítali Hringsins hefur umsjón með nokkrum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem leigðar eru til foreldra sjúkra barna utan af landi.

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur tvær íbúðir til útleigu fyrir sjúklinga og aðstandendur.

Upplýsingar um greiðslu fyrir afnot af íbúð fást hjá tengiliðum.

Sjúkrasjóðir ýmissa stéttarfélaga leigja einnig út sjúkraíbúðir á höfuðborgarsvæðinu.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir