Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Launastefna

Forstjóri ber ábyrgð á launastefnu Vinnueftirlitsins og er jafnlaunastefna þess órjúfanlegur hluti af launastefnu þess.

Stefna Vinnueftirlitsins er að allt starfsfólk Vinnueftirlitsins njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. Með jöfnum launum er átt við að laun og önnur starfskjör skuli ákveðin á sama hátt fyrir konur, karla og önnur kyn. Skulu viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun hvorki fela í sér beina né óbeina kynjamismunun.

Laun eru skilgreind í 9. tölulið 2. grein laga númer 150 frá 2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem almennt endurgjald fyrir störf og hvers konar frekari þóknun, bein og óbein, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða með öðrum hætti sem atvinnurekandi greiðir starfskrafti fyrir vinnu.

Kjör eru skilgreind í 10. tölulið 2. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem laun ásamt lífeyris-, orlofs- og veikindaréttindum og hvers konar öðrum starfskjörum eða réttindum sem metin verða til fjár.

Með beinni mismunun er átt við þegar einstaklingur fær óhagstæðari meðferð vegna kyns en annar einstaklingur fær, hefur fengið eða myndi fá við sambærilegar aðstæður, samanber 1. tölulið 2. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Með óbeinni mismunun er átt við þegar að því er virðist hlutlaust skilyrði, viðmið, eða ráðstöfun kemur verr við einstaklinga af einu kyni fremur en öðru nema slíkt sé unnt að réttlæta á málefnalegan hátt með lögmætu markmiði og aðferðir til að ná þessu markmiði séu viðeigandi og nauðsynlegar, samanber 2. tölulið 2. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Vinnueftirlitið greiðir laun samkvæmt umfangi og eðli starfa og tekur mið af þeim kröfum sem störf gera um hæfni, ábyrgð og vinnuvernd. Skal tryggt að viðmiðin séu ávallt málefnaleg og viðeigandi. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við kjara- og stofnanasamninga, studdar rökum og tryggi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.Starfslýsingar skulu vera til fyrir öll störf hjá Vinnueftirlitinu. Þar skulu koma fram allir meginþættir starfs, svo sem kröfur um menntun, hæfni, reynslu og þá ábyrgð sem í starfinu felst auk upplýsinga um starfaflokk samkvæmt jafnlaunakerfi.

Vinnueftirlitið skal innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og öðlast vottun í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Framkvæmdastjórn tekur endanlegar ákvarðanir um launabreytingar alls starfsfólks Vinnueftirlitsins. Fulltrúar í stjórn stofnunarinnar teljast ekki til starfsfólks hennar. Í framkvæmdastjórn sitja forstjóri og sviðsstjórar.

Sérstakt launaráð skal vera starfrækt sem í sitja forstjóri ásamt sviðsstjórum. Hlutverk launaráðsins er að tryggja stöðugar umbætur á launakerfinu og annast eftirlit með því að launastefnu stofnunarinnar, þar á meðal jafnlaunastefnu, sé fylgt eftir við ákvarðanir launa. Launaráð fer yfir laun alls starfsfólks stofnunarinnar árlega eða oftar til að tryggja að samræmi sé gætt í launagreiðslum. Sérstaklega skal að því gætt að hvorki sé fyrir hendi bein eða óbein mismunun við ákvarðanir launa.

Árlega skal gera jafnlaunaúttekt og komi í ljós kynbundinn launamunur, sem ekki er unnt að skýra með málefnalegum hætti, þarf að bregðast við og leiðrétta þann mun. Skal launaráðið sjá til þess að jafnlaunaúttektir fari fram árlega og komi með tillögur til framkvæmdastjórnar um úrbætur þegar það á við. Í því felst meðal annars að kanna hvort kynbundinn munur sé á launum og starfskjörum og setja fram og rýna jafnlaunamarkmið. Niðurstöður jafnlaunaúttektar skal kynna fyrir starfsfólki Vinnueftirlitsins.

Gæðastjóri við innri úttekt jafnlaunakerfis skal framkvæma innri úttekt einu sinni á ári. Enn fremur skal rýni stjórnenda Vinnueftirlitsins fara fram árlega. Rýni stjórnenda fer fram í framkvæmdastjórn og felur meðal annars í sér reglulega endurskoðun á kröfum sem störf gera um hæfni, ábyrgð og vinnuvernd í því skyni að tryggja að viðmiðin séu ávallt málefnaleg og viðeigandi. Stofnunin skal fylgja eftir lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og skal framkvæmdastjórn hennar staðfesta að þeim sé hlítt.

Launastefna Vinnueftirlitsins skal birt á ytri vef stofnunarinnar.

Útgáfudagur: 4. des. 2023
Útgáfa 4.0
Ábyrgð: Forstjóri

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439