Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun þessi tekur til Vinnueftirlitsins og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Vinnueftirlitsins þau réttindi sem lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (jafnréttislaga) og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði kveða á um.
Í jafnréttisáætluninni eru sett fram markmið og aðgerðir sem lúta að ákvæðum jafnréttislaga sem varða innra starf Vinnueftirlitsins. Hluti áætlunarinnar er einnig jafnlaunastefna Vinnueftirlitsins, viðbragðsáætlun vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og ofbeldis, fjarvinnu- og viðverustefna.
Vinnueftirlitið er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt og öll hafa jöfn tækifæri til að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína í starfi óháð kyni, búsetu, aldri, kynhneigð, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, fötlun, skertri starfsgetu eða öðrum ómálefnalegum þáttum. Starfsfólk Vinnueftirlitsins á í heilbrigðum samskiptum og virðir samskiptasáttmála stofnunarinnar.
Jafnréttisáætlun Vinnueftirlitsins hefur verið samþykkt í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Áætlunin er endurskoðuð á þriggja ára fresti.
Markmið jafnréttisáætlunar gagnvart starfsfólki
Tilgangur jafnréttisáætlunar Vinnueftirlitsins er að tryggja jafnrétti þeirra kynja er starfa hjá Vinnueftirlitinu auk þess að jafna stöðu og virðingu kynjanna. Enn fremur að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað um mikilvægi þess að öll fái notið sín óháð kyni.
Mikil verðmæti felast í virku jafnréttisstarfi innan vinnustaðarins. Við vitum að við getum öll valið okkur viðhorfin sem við komum með til vinnu og við berum öll ábyrgð. Við erum til staðar fyrir hvert annað og tileinkum okkur jákvæð viðhorf. Jafnrétti eykur líkur á að starfsfólki líði vel í starfi og upplifi öryggi og þá náum við árangri saman. Einnig er viðbúið að virkt jafnréttisstarf styrki ímynd Vinnueftirlitsins sem góður vinnustaður þar sem öll upplifa sig jafn mikilvæg..
Launajafnrétti
Stefna Vinnueftirlitsins er að allt starfsfólk Vinnueftirlitsins njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. Með jöfnum launum er átt við að laun og önnur starfskjör skuli ákveðin á sama hátt fyrir kynin. Skulu viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun hvorki fela í sér beina né óbeina mismunun.
Laun eru skilgreind í 9. tölul. 2. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem almennt endurgjald fyrir störf og hvers konar frekari þóknun, bein og óbein, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða með öðrum hætti sem atvinnurekandi greiðir starfskrafti fyrir vinnu.
Kjör eru skilgreind í 10. tölul. 2. gr. sömu laga sem laun ásamt lífeyris-, orlofs- og veikindaréttindum og hvers konar öðrum starfskjörum eða réttindum sem metin verða til fjár.
Með beinni mismunun er átt við þegar einstaklingur fær óhagstæðari meðferð vegna kyns en annar einstaklingur fær, hefur fengið eða myndi fá við sambærilegar aðstæður, sbr. 1. tölul. 2. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Með óbeinni mismunun er átt við þegar að því er virðist hlutlaust skilyrði, viðmið, eða ráðstöfun kemur verr við einstaklinga af einu kyni fremur en öðru nema slíkt sé unnt að réttlæta á málefnalegan hátt með lögmætu markmiði og aðferðir til að ná þessu markmiði séu viðeigandi og nauðsynlegar, sbr. 2. tölul. 2. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Vinnueftirlitið greiðir laun samkvæmt umfangi og eðli starfa og tekur mið af þeim kröfum sem störf gera um hæfni, ábyrgð og vinnuvernd. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við jafnlaunaviðmið og flokkun starfa stofnunarinnar og hlutaðeigandi kjarasamninga og tryggi þannig að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.
Vinnueftirlitið skal innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og öðlast vottun í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Framkvæmdastjórn tryggir stöðugar umbætur á launakerfinu og annast eftirlit með því að launastefnu stofnunarinnar, þar á meðal jafnlaunastefnu, sé fylgt eftir við ákvarðanir launa. Framkvæmdastjórn fer yfir laun alls starfsfólks stofnunarinnar árlega eða oftar til að tryggja að samræmi sé gætt í launagreiðslum á sérstökum fundum sem tileinkaðir eru launakerfi stofnunarinnar. Sérstaklega skal að því gætt að hvorki sé fyrir hendi bein eða óbein mismunun við ákvarðanir launa.
Árlega skal gera jafnlaunaúttekt og komi í ljós kynbundinn launamunur, sem ekki er unnt að skýra með málefnalegum hætti, þarf að bregðast við og leiðrétta þann mun. Skal framkvæmdastjórn sjá til þess að jafnlaunaúttektir fari fram árlega og að úrbætur verði framkvæmdar þegar það á við. Í því felst meðal annars að kanna hvort kynbundinn munur sé á launum og starfskjörum. Niðurstöður jafnlaunaúttektar skal kynna fyrir starfsfólki Vinnueftirlitsins.
Gæðastjóri við innri úttekt jafnlaunakerfis skal framkvæma innri úttekt einu sinni á ári. Enn fremur skal rýni stjórnenda Vinnueftirlitsins fara fram árlega. Rýni stjórnenda fer fram í framkvæmdastjórn og felur meðal annars í sér reglulega endurskoðun á kröfum sem störf gera um hæfni, ábyrgð og vinnuvernd í því skyni að tryggja að viðmiðin séu ávallt málefnaleg og viðeigandi. Stofnunin skal fylgja eftir lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og skal framkvæmdastjórn hennar staðfesta að þeim sé hlítt.
Launastefna Vinnueftirlitsins skal birt á ytri vef stofnunarinnar.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Að sem minnstur munur sé á launum kynjanna eða innan við 1% | #1: Jafnlaunaúttekt skal að lágmarki gera árlega. Komi í ljós kynbundinn launamunur, sem ekki er unnt að skýra með málefnalegum hætti, þarf að bregðast við og leiðrétta þann mun. Niðurstöður jafnlaunaúttektar skal kynna fyrir starfsfólki Vinnueftirlitsins. | Framkvæmdastjórn | Í nóvember ár hvert |
#2: Til að tryggja launajafnrétti skal Vinnueftirlitið uppfylla kröfur jafnlaunastaðals ÍST 85:2012 samkvæmt jafnlaunavottun. | Framkvæmdastjórn | Viðvarandi | |
#3: Árlega skal fara fram innri úttekt og rýni stjórnenda Vinnueftirlitsins til að viðhalda jafnlaunakerfi stofnunarinnar. | Framkvæmdastjórn | Í nóvember ár hvert |
Laus störf og framgangur í starfi, starfsþjálfun og símenntun
Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið fólki af öllum kynjum. Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Sérstök áhersla er lögð á að jafna stöðu kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum.
Tryggt verði að öll njóti sömu möguleika til starfsþjálfunar og símenntunar, þar á meðal að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings öðrum störfum. Þess verði gætt við úthlutun verkefna og tækifæra til að axla ábyrgð, sem og þegar um framgang eða tilfærslu í störfum er að ræða, að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis, búsetu, aldri, kynhneigð, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, fötlun, skertri starfsgetu eða annarra ómálefnalegra þátta. Sama gildir um starfs- eða vinnuhópa sem starfsfólk er skipað í.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Jafn aðgangur að störfum | #4: Í auglýsingum eru störf ókyngreind og þess gætt að hafa öll kyn í huga við gerð þeirra. Hvetja skal fólk af öllum kynjum til að sækja um auglýst störf. | Framkvæmdastjórn | Viðvarandi |
Kynjablandaður vinnustaður | #5: Ef hallar á annaðhvort konur eða karla ber að gæta sérstaklega að jafnréttissjónarmiðum þegar nýráðningar eða tilfærslur í störfum innan Vinnueftirlitsins eiga sér stað þegar einstaklingar eru jafnhæfir og nýta þá tækifæri til að rétta hlut þess kyns sem á hefur hallað. Einnig skal huga að stöðu starfsfólks af öðrum kynjum við nýráðningar eða tilfærslur í störf. | Framkvæmdastjórn | Viðvarandi |
Jafn aðgangur að símenntun og framgangi í starfi | #6: Halda skal kynjagreint bókhald yfir þátttöku starfsfólks í námskeiðum, í annarri skipulagðri símenntun og í starfs- og vinnuhópum svo unnt sé að greina hvort hallar á kynin við nýtingu slíkra tækifæra. Komi munur í ljós ber að gera ráðstafanir til að bregðast við honum. | Sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar og sviðs reksturs og greiningar | Janúar ár hvert |
Samræming vinnu og einkalífs
Starfsfólki skal gert kleift að samræma vinnu og einkalíf óháð kyni með sveigjanlegum dagvinnuvinnutíma eða annarri vinnuhagræðingu eftir því sem við verður komið og þörf er á. Gera skal ráð fyrir að öll njóti sveigjanleika til að sinna fjölskyldum sínum og njóta frítíma síns.
Sveigjanlegur dagvinnutími snýst um að skapa aukið svigrúm og fleiri valkosti í skipulagi vinnunnar í þeim tilgangi að ná að viðhalda skynsamlegu jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Markmið Vinnueftirlitsins er meðal annars að bjóða fólki að gera samning um fjarvinnu, henti það þeim og starfi þess og er þannig komið til móts við það starfsfólk sem kýs sjálft að vinna fjarri vinnustaðnum að hluta.
Það er sameiginlegt markmið okkar að við getum sinnt störfum okkar á sem skilvirkastan hátt en haft samt tíma og orku til að geta notið annarra gæða sem lífið hefur upp á að bjóða.
Liður í því að tryggja vellíðan í starfi og samþættingu vinnu og einkalífs er að leitast er við að vinna litla sem enga yfirvinnu. Með þessu göngum við á undan með góðu fordæmi sem vinnuverndarstofnun.
Óheimilt er að láta fæðingar- og foreldraorlof, eða aðrar aðstæður tengdar meðgöngu og barnsburði, hafa neikvæð áhrif á ákvarðanir um framgang í starfi, símenntun, uppsögn, vinnuaðstæður og fleiri slíka þætti sem fram koma í 1. mgr. 19. gr. jafnréttislaga.
Fjarvinnu- og viðverustefna Vinnueftirlitsins fela í sér frekari skilgreiningar á sveigjanlegum vinnutíma og fjarvistir tengdar fjölskylduaðstæðum starfsfólks.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs | #7: Framsækin fjarvinnu- og viðverustefna eru í gildi og þekktar meðal starfsfólks. | Forstjóri og sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar | Viðvarandi |
Halda yfirvinnu starfsfólks innan hóflegra marka og uppræta kynbundinn mun þar á | #8: Fara skal yfir fjölda yfirvinnustunda og kyngreina ef ástæða er til. Bregðast skal við með endurskipulagningu verkefna eða annarri vinnuhagræðingu ef þörf er á. | Sviðsstjórar | Í janúar ár hvert |
Kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðisleg áreitni
Við sem störfum hjá Vinnueftirlitinu leggjum okkur fram við að eiga í heilbrigðum samskiptum sem byggja á virðingu og vinsemd í öllum okkar störfum hvort sem það er í samskiptum innan stofnunarinnar eða utan hennar. Við tileinkum okkur jákvæð viðhorf og uppbyggilega endurgjöf. Við erum til staðar fyrir hvert annað og veitum stuðning. Þannig stuðlum við saman að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinnuumhverfi þar sem einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi verður ekki liðin, hvorki af hálfu stjórnenda né starfsfólks. Við berum öll ábyrgð á því að vinnustaðurinn okkar sé öruggur og góður staður til að vera á.
Stjórnendur bera ábyrgð á að sýna gott fordæmi og leggja áherslu á öryggi og vellíðan starfsfólks í daglegu starfi stofnunarinnar. Stjórnendur eru til staðar fyrir starfsfólk og skapa vettvang fyrir starfsfólkið til að viðra upplifun sína af vinnuumhverfinu. Viðbragðsáætlun stofnunarinnar vegna eineltis, ofbeldis og áreitni miðar að því að stjórnendur bregðist fljótt og faglega við, hvort sem þeir verða sjálfir varir við atvik eða taka við ábendingum eða kvörtunum, og tryggi að öll mál fái málefnalega meðferð.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Vinna gegn einelti, kynbundnu ofbeldi, kynbundinni og kynferðislegri áreitni | #9: Vinnueftirlitið leggur fyrir 4-6 sinnum á ári stutta könnun (Moodup) sem gefur vísbendingar um líðan starfsfólks og öryggi þess í starfi hverju sinni. | Forstjóri og sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar | Viðvarandi |
#10: Gert er sálfélagslegt áhættumat á tveggja ára fresti | Forstjóri og sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar | Mars 2027 | |
#11: Endurskoðun á viðbragðsáætlun vegna eineltis, áreitni og ofbeldis | Forstjóri og sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar | Apríl 2027 | |
#12 Boðið er reglulega upp á fræðslu um kynbundið ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni og einelti ef þurfa þykir | Forstjóri og sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar | Viðvarandi |
Vellíðan og öryggi starfsfólks
Í öllu starfi Vinnueftirlitsins verði unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar kynjanna að því verðar aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Jafnréttismál og leiðir til að stuðla að jafnri stöðu kynjanna verði virkur þáttur í daglegu starfi í Vinnueftirlitinu og samþætt stefnumótun og ákvörðunum innan þess.
Kynjasamþætting
Kynjasamþættingar skal gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð á vegum Vinnueftirlitsins. Hið sama gildir um alla ákvörðunartöku innan stofnunarinnar eftir því sem við getur átt, sbr. 30. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumótun og ákvörðunartöku | #13 Ávallt skal gæta að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í störfum Vinnueftirlitsins, s.s. við innri stefnumótun, skipulag átaka eða einstakra verkefna, þar sem metin eru áhrif á konur annars vegar og karla hins vegar. | Sviðsstjórar og leiðtogar | Viðvarandi |
Mismunun
Allt starfsfólk á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og hvers kyns mismunun, fordómar eða áreitni vegna kyns, kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði.
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
|---|---|---|---|
Að mismunun finnist ekki innan Vinnueftirlitsins | #14 Starfsfólk Vinnueftirlitsins fær reglulega fræðslu um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu. Starfsfólk þekki réttindi sín og hvert skal leita verði það fyrir mismunun eða óæskilegri hegðun. | Framkvæmdastjórn | Viðvarandi |
Gildistími
Útgáfudagur: 24. nóvember 2025
Útgáfa 5.0
Teg.: SKJ
Ábyrgðarmaður: Forstjóri
Jafnréttisáætlun þessi gildir til 1. desember 2028.
