Fyrsta dvalarleyfi
Umsókn þín um fyrsta dvalarleyfi hefur verið samþykkt
Ef þú þarft vegabréfsáritun til að ferðast til Íslands sendir Útlendingastofnun beiðni um svokallaða komuáritun til viðeigandi sendiráðs.
Athugaðu hvort þú þurfir vegabréfsáritun til að ferðast til Íslands.
Áður en dvalarleyfið er gefið út þarftu að:
Mæta í myndatöku fyrir dvalarleyfiskort, annað hvort til Útlendingastofnunar, þar er nauðsynlegt að panta tíma, eða til sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Nauðsynlegt er að hafa vegabréf meðferðis til staðfestingar á auðkenni.
Leggja fram tilkynningu um dvalarstað þar sem koma fram upplýsingar um hvar á Íslandi þú munt búa.
Gangast undir læknisskoðun innan tveggja vikna frá komu til landsins.
Umsækjendur sem koma frá löndum EES-svæðisins, Sviss, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Japan og Ísrael þurfa ekki að gangast undir læknisskoðun.
Þú þarft að uppfylla þessi skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis innan 90 daga frá því að þér var tilkynnt að umsókn þín um dvalarleyfi hafi verið samþykkt.
Dvalarleyfiskortið er ekki pantað fyrr en þú hefur uppfyllt skilyrðin fyrir útgáfu dvalarleyfis: farið í myndatöku, lagt fram tilkynningu um dvalarstað og farið í læknisskoðun, ef þörf var á.
Þú munt síðan fá sendan tölvupóst með upplýsingum um hvenær og hvert þú getur sótt kortið þitt.
Ef þú fórst í myndatöku hjá Útlendingastofnun geturðu sótt kortið í Hagkaup í Skeifunni. Ef þú fórst í myndatöku hjá sýslumannsembætti sækir þú kortið þitt til þess embættis þar sem myndatakan fór fram.
Kennitala er 10 tölustafa númer sem einstaklingar, fyrirtæki og fleiri nota á Íslandi til að auðkenna sig í viðskiptum og samskiptum.
Þegar Útlendingastofnun hefur samþykkt umsókn þína um dvalarleyfi sendir hún tilkynningu til Þjóðskrár sem gefur út kennitölu fyrir þig. Kennitalan er síðan prentuð á dvalarleyfiskortið þitt.
Erlendir ríkisborgarar þurfa að gangast undir læknisrannsókn vegna sóttnæmra sjúkdóma eftir að umsókn þeirra um dvalarleyfi hefur verið samþykkt og þeir eru komnir til landsins, ef þeir koma frá:
Mið- og Suður-Ameríku, þar með talið Mexíkó,
Evrópu utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES),
Asíu eða
Afríku.
Læknisskoðunin er skilyrði fyrir því að fá útgefið dvalarleyfi og dvalarleyfiskort. Umsækjendur frá löndum innan EES-svæðisins, Sviss, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Japan eða Ísrael þurfa ekki að gangast undir læknisrannsókn.
Það er ekki nóg að leggja eingöngu fram erlent læknisvottorð í stað þess að fara í hefðbundna læknisskoðun á Íslandi vegna útgáfu dvalarleyfis.
Samkvæmt upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hins vegar hugsanlegt að hægt sé að nýta niðurstöður úr nýlegum rannsóknum erlendis frá, ef þær uppfylla verklagsreglur sóttvarnalæknis um læknisrannsókn á fólki sem flyst til Íslands. Skoða þarf hvert tilvik fyrir sig.
Óskir þú eftir því að reyna þessa leið er þér bent á að hafa samband við Domus Medica og leggja fram erlent læknisvottorð sem ekki er eldra en þriggja mánaða.
Þú getur óskað eftir að fá til baka frumrit og afrit gagna sem þú hefur lagt fram hjá Útlendingastofnun. Þú getur einnig óskað eftir því að fá afrit af gögnum sem tengjast máli þínu hjá stofnuninni gegn greiðslu.
Ef þú dvelur lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfi þitt verið fellt niður.
Dvalarleyfi fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili þitt hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.