Beiðni um gögn
Þú getur óskað eftir að fá til baka frumrit og afrit gagna sem þú hefur lagt fram hjá Útlendingastofnun. Þú getur einnig óskað eftir því að fá afrit af gögnum sem tengjast máli þínu hjá stofnuninni gegn greiðslu.
Hvernig óska ég eftir gögnum?
Til að óska eftir gögnum sendir þú tölvupóst á skjalavarsla@utl.is.
Í beiðninni þarf að koma fram:
Nafn þitt.
Kennitala eða fæðingardagur.
Hvaða gögnum þú óskar eftir.
Ef óskað er eftir frumritum þarftu að taka fram hvort þú viljir
sækja gögnin í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða
fá þau send í póstkröfu á lögheimili.
Ef óskað er eftir afriti af málsgögnum þarftu að taka fram hvort þú viljir
fá gögnin afhent rafrænt í gegnum örugga gagnagátt,
sækja þau í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða
fá þau send í póstkröfu á lögheimili.
Hverjir geta fengið gögn?
Aðeins þú eða umboðsmaður þinn getið fengið afhent gögn sem varða mál þitt hjá stofnuninni.
Ef annar aðili sækir gögn fyrir þig þarf að liggja fyrir gilt umboð. Ef umboðsmaður er lögmaður getur starfsmaður á sömu lögmannsstofu sótt gögnin fyrir hans hönd.
Kostnaður
Ef óskað er eftir afriti af gögnum þarf að greiða afgreiðslugjald.
Ljósrit/endurrit: 300 krónur per blaðsíðu.
Rafræn afrit af gögnum: 300 krónur per blaðsíðu 1-10, 150 krónur per blaðsíðu umfram 10.
Ef óskað er eftir að fá gögn afhent rafrænt eða send í póstkröfu þarf að greiða afgreiðslugjald og senda kvittun áður en gögnin verða afhent.
Leiðbeiningar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Afgreiðslutími
Afgreiðsla gagnabeiðna getur tekið allt að 10 virka daga.
Þú færð tölvupóst þegar gögnin eru tilbúin ef þú hefur óskað eftir að sækja þau í afgreiðslu.