Fara beint í efnið

Umboðskerfi

Með umboðskerfi Stafræns Íslands geta einstaklingar skráð sig inn fyrir hönd fyrirtækja, barna og þeirra einstaklinga sem hafa gefið þeim umboð.

Efnisyfirlit

Umboð er annað hvort veitt af einstaklingi eða kemur til vegna tengsla fólks. Umboð sem eru til komin vegna tengsla eru sótt í grunnskrár þeirrar stofnunar sem ber ábyrgð á þeirri skráningu við innskráningu, til dæmis eru prókúrutengsl fyrirtækis sótt á öruggan hátt í fyrirtækjaskrá Skattsins.

Þegar einstaklingur ætlar að skrá skrá sig inn fyrir hönd annarra byrjar hann á því að skrá sig inn með sínum eigin rafrænu skilríkjum og síðan eru umboð hans sótt í umboðskerfið. Einstaklingurinn er alltaf innskráður til þess að tryggja öryggi og rekjanleika.

Hvernig virkar innskráning með umboði?

Ávinningur fyrir stofnun

Innskráningar- og umboðskerfið er stofnunum að kostnaðarlausu.

Eitt af markmiðum Stafræns Íslands er að búa til endurnýtanlegar kjarnaþjónustur fyrir stofnanir og auka þar með samlegðaráhrif í rekstri upplýsingatæknikerfa ríkisins.

Með miðlægu umboðskerfi er að rekstur, viðhald og þróun gerð á einum stað.

Öryggi og rekjanleiki

Það að einstaklingurinn sé alltaf auðkenndur er mikilvægt upp á öryggi og rekjanleika.

Þegar notandi framkvæmir aðgerðir eða sækir gögn fyrir hönd annars fyrirtækis eða einstaklings er rekjanlegt hver það er sem framkvæmir aðgerðirnar.

Stofnanir munu því getað aðgangsstýrt einstökum hlutum vefsvæða sinna og sannreynt notandann og hans aðgang gagnvart vefþjónustum sínum.

Þetta gefur stofnunum tækifæri til að tryggja að enginn sæki gögn nema þau sem hann sannarlega hefur réttindi til að sækja.

Eins gefur þetta stofnunum tækifæri til að „auditlogga“ aðgerð þannig að hún sé rekjanleg niður á þann einstakling sem framkvæmdi hana, þegar það á við.

Hvað þarf stofnun að gera?

Til að nota umboðskerfið þarf stofnun að byrja á því að innleiða innskráningarkerfið.

Innskráningarþjónusta Stafræns Íslands er rekin sem áskriftarþjónusta (SaaS) stofnunum að kostnaðarlausu.

  • Stofnun sendir inn umsókn um innskráningarþjónustu Stafræns Íslands

  • Í kjölfarið þarf stofnun að veita tæknilegar upplýsingar um vefsvæði sem innskráningin á að tengjast og fá aðgang að prófunarsvæði til að tengja vefsvæði sitt.

  • Stafrænt Ísland veitir tækniráðgjöf við innleiðingu á innskráningarþjónustunni.

Stofnun sem ætlar að nýta sér umboðskerfið ákveður sjálf hvers konar heimildir hún ætlar að veita að sínum vefkerfum. Stofnun getur því ákveðið að vefkerfi styðji aðeins innskráningu fyrir hönd fyrirtækja en ekki fyrir hönd barna. Hver stofnun ákveður síðan hver sýnin er gagnvart notandanum og hvað hann má gera þegar hann er skráður inn fyrir hönd annarra. Innskráningar- og umboðskerfið tryggir að notandinn sé sá sem hann segist vera og tilgreinir þær heimildir sem hann hefur og gildistíma þeirra.

Hlutverk Stafræns Íslands

Stafrænt Ísland rekur og viðheldur innskráningarþjónustu og umboðskerfi með 24/7 vöktun framkvæmdum af rekstaraðilum okkar. Stafrænt Ísland veitir einnig tæknilega aðstoð til stofnana við innleiðingu á innskráningar- og umboðskerfi.

Umboðskerfið sækir heimildir á rafrænan og öruggan hátt til:

  • Þjóðskrár fyrir forsjártengsl. Þjóðskrá ber ábyrgð á því að skráning forsjártengsla sé rétt.

  • Skattsins fyrir prókúrutengsl. Skatturinn ber ábyrgð á því að skráning prókúrutengsla sé rétt.

  • Stafræns Íslands fyrir umboð sem einstaklingur gefur öðrum. Stafrænt Ísland heldur utan um umboð sem einstaklingar veita öðrum.

  • Réttindagæslu fatlaðra fyrir persónulega talsmenn. Réttindagæslan ber ábyrgð á því að skráning persónulegra talsmanna sé rétt.

Tæknilegar upplýsingar

Nánari tæknilegar upplýsingar má finna á þróunarvef Stafræns Íslands.

Skilmálar

Þjónustuskilmálar Stafræns Íslands um innskráningarþjónustu og umboðskerfi, auk tengdra samninga og viðauka, mynda samkomulag þjónustuveitanda og þjónustuþega um þjónustuna. Með því að nota þjónustuna samþykkir þjónustuþegi skilmálana.

Lesa þjónustuskilmálana