Beint að efninu með Tryggingastofnun
10. febrúar 2021
Stafræna umsóknakerfi Tryggingastofnunar er nú beintengt við Ísland.is
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3t5wvZcQ7fh7Lmo1DlFOGk/322f4a423cf232cbf3c42ce5d0b9f964/Screenshot_2021-02-11_at_15.28.21.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Tryggingastofnun](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3t5wvZcQ7fh7Lmo1DlFOGk/322f4a423cf232cbf3c42ce5d0b9f964/Screenshot_2021-02-11_at_15.28.21.png?w=774&fm=webp&q=80)
Mikilvægum áfanga hefur verið náð hjá Ísland.is með stafrænni tengingu við umsóknakerfi Tryggingastofnunar þar sem 26 umsóknir eru nú beintengdar við Ísland.is. Notanda er vísað beint í fyrsta skref umsóknar og þarf því ekki að leita nema á Ísland.is og fær þá bestu upplýsingar í fyrstu snertingu.
Umsóknir um t.d. barnalífeyri, dánarbætur, framlag vegna menntunar, heimilisuppbót, einfalt meðlag, ummönnunargreiðslur og foreldragreiðslur svo eitthvað sé nefnt eru nú aðgengilegar beint frá Ísland.is.
Umsóknaferlið er nú;
1. Leitar
2. Finnur
3. Smellir
4. Innskráir
5. Fyllir út
6. Staðfestir og sendir inn.