Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Umsóknarleiðir

Ferli endurnýjunar eldri upplýsingakerfa


Umsóknir um fjárframlag frá ríkinu vegna endurnýjunar eldri upplýsingakerfa tengjast tveimur skýrum punktum í flæðinu, en ekki öllum stigum ferlisins.

Umsókn um ráðgjöf vegna endurnýjunar upplýsingakerfa

Leið 1: Umsókn fyrir H2 fjármögnun tæknigreiningar
Þegar verkefni hefur verið afmarkað á H1 getur stofnun sótt um styrk fyrir næsta skref, það er greiningu, ráðgjöf og annan undirbúning sem þarf til að velja viðeigandi leið. Slíkur undirbúningur getur falist í aðkeyptri sérfræðiráðgjöf innan rammasamninga Fjársýslunnar. Markmiðið er að undirbúningurinn skili skýrum gögnum sem nýtast til að ákveða næstu skref.

Leið 2: Umsókn fyrir H3fjármögnun framkvæmdar
Þegar H2 er lokið getur stofnun sótt um styrk fyrir næsta skref. Til þess þarf að liggja fyrir fullnægjandi greining, skýr niðurstaða um valda leið og raunhæf áætlun um framkvæmd, rekstrarumhverfi og ábyrgð. Þá þarf einnig að sýna fram á að verkefnið varði kerfislega mikilvægt kjarnakerfi ríkisins, að verkefnið sé yfir 100 m.kr., og að stofnun hafi bæði mótframlag og hæfni til að bera verkefnið áfram.

Styrkur á fyrra stigi felur ekki í sér fyrirheit um áframhaldandi fjármögnun. Ef greining eða tæknileg nálgun uppfyllir ekki forsendur getur umsókn fengið höfnun. Í slíkum tilvikum getur stofnun annaðhvort endurskoðað gögn sín og sótt aftur um eða ákveðið að fara aðra leið. Ef framkvæmd er þegar hafin er almennt ekki gert ráð fyrir styrk.

Hvað þarf að liggja fyrir?

Það sem þarf að liggja fyrir á styrkhæfum stigum á að vera skýrt, stutt og hagnýtt.

Fyrir H2 þarf að liggja fyrir:

  1. hvert vandamálið er,

  2. hvers vegna verkefnið skiptir máli,

  3. hverju næsta skref á að skila,

  4. og hvaða aðkeyptu vinnu þarf til að komast þangað.


Fyrir H3 þarf að liggja fyrir:

  1. niðurstaða tæknigreiningar og valin leið,

  2. skýr áætlun um næsta skref,

  3. mótframlag og ábyrgð stofnunar,

  4. og kostnaðaryfirlit þar sem innri og ytri vinna eru aðgreind.

Hvað er almennt ekki fjármagnað?

Ekki er gert ráð fyrir styrk:

  • til að viðhalda núverandi kerfum eða bæta við þau án skýrrar umbótaleiðar,

  • vegna verkefna sem eru óskýr eða illa undirbúin,

  • fyrir verkefni þar sem greining eða tæknileg nálgun fellur ekki að viðmiðum ríkisins,

  • fyrir verkefni þar sem framkvæmd er þegar hafin.

  • né er gert ráð fyrir fjármögnun á H4 eða H5.


Fjárhagslegt umfang og eigin aðkoma

Við mat á umsóknum er horft til umfangs verkefnisins, mikilvægi þess og undirbúnings. Gert er ráð fyrir að stofnun leggi fram eigið framlag í formi vinnu, þekkingar og eftir atvikum fjármagns. Fagráðuneyti getur einnig haft aðkomu þar sem það á við. Fjárfestingarframlag frá FJR er því hluti af fjármögnun verkefnisins, en kemur ekki í stað ábyrgðar stofnunar á verkefninu eða áframhaldandi rekstri þess.

Tvö sjónarhorn sem þurfa að haldast í hendur

Fyrir hvert verkefni þarf að liggja fyrir bæði efnisleg og tæknileg ábyrgð. Annars vegar þarf að vera skýrt hver getur lýst tilgangi, áhrifum og ávinningi verkefnisins fyrir starfsemi og þjónustu. Hins vegar þarf að vera skýrt hver getur lýst tæknilegri nálgun, framkvæmd, gögnum, samþættingum og rekstri.

Verkefni af þessu tagi ná sjaldnast árangri ef annað sjónarhornið vantar. Gert er ráð fyrir að efnisleg greining og tæknileg útfærsla séu unnar saman.

Lesa meira um gögn sem þurfa að fylgja umsókn