Endurnýjun kerfa
Gögn sem þurfa að fylgja umsóknum
Verkefni sem eru skammt á veg komin þurfa að sýna fram á skýran tilgang og markvissan undirbúning. Verkefni sem eru komin lengra þurfa að sýna fram á raunhæfar áætlanir, núverandi stöðu og hvernig áframhaldandi þróun og rekstur verður skipulagður.
Umsókn fyrir H2: Það sem þarf að liggja fyrir
Stutt lýsing á vandanum
Hvers vegna verkefnið skiptir máli
Hvað greiningin á að skila
Hvaða aðkeypta vinna er fyrirhuguð
Umsókn fyrir H3: Það sem þarf að liggja fyrir
Niðurstaða H2 og valin leið
Raunhæf áætlun um næsta skref
Mótframlag og ábyrgð stofnunar
Kostnaðaryfirlit með aðgreiningu innri og ytri kostnaðar
H1 – Frumathugun og afmörkun
Kröfur til | Skjöl / efni |
Skýrrar afmörkunar verkefnis | Stutt þarfalýsing |
Lýsingar á vandanum | Lýsing á kerfi og hlutverki þess |
Skilnings á þjónustu, ferlum og gögnum | Yfirlit yfir helstu þjónustu og gögn |
Mats á mikilvægi kerfisins | Stutt mat á áhrifum á starfsemi og notendur |
H2 – Óháð tæknigreining og leið til nútímavæðingar
Kröfur til | Skjöl / efni |
Mats á valkostum | Frumgreining á leiðum og valkostum |
Skýrrar afstöðu til kaupa, aðlögunar eða þróunar | Samantekt um valda leið |
Mats á tengingum við önnur kerfi og innviði | Kröfu- og tæknilýsing, eftir því sem við á |
Mats á kröfum til gagna, öryggis og persónuverndar | Samantekt um helstu kröfur og forsendur |
H3 – Uppsetning eða þróun lausnar og samþætting
Áætlanir um | Skjöl / efni |
Framkvæmd verkefnisins | Kröfu- og tæknilýsing |
Samþættingar og áfangaskiptingu | Samþættingarlýsing og innleiðingaráætlun |
Ábyrgð milli aðila | Samningsgrunnur eða útboðsgögn, ef við á |
Eignarhald á gögnum og skjölun | Skýrt ábyrgðaryfirlit eða samningsforsendur |
H4 – Uppsetning rekstrarumhverfis
Áætlanir um | Skjöl / efni |
Hýsingu og rekstrarumhverfi | Lýsing á rekstrarumhverfi |
Rekstrarábyrgð og þjónustu | Rekstrar- og ábyrgðarfyrirkomulag |
Öryggi, vöktun og endurheimt | Lýsing á öryggis- og rekstrarráðstöfunum |
Aðgangsstýringu og rekstrarskjölun | Rekstrarskjölun og tengingayfirlit |
H5 – Rekstur og viðhald
Áætlanir um | Skjöl / efni |
Áframhaldandi rekstur og viðhald | Rekstrar- og viðhaldsáætlun |
Þjónustustig og breytingastýringu | Lýsing á þjónustustigum og uppfærslum |
Aflagningu eldri lausnar | Áætlun um útleiðingu eldra kerfis |
Útgönguleið og áframhaldandi þróun | Áætlun um útgönguleið og framtíðarþróun |
Aðgreining innri og ytri kostnaðar
Með umsókn þarf að fylgja einfalt kostnaðaryfirlit þar sem verkþættir eru sundurliðaðir og greinarmunur gerður á innri og ytri kostnaði. Það þarf að vera skýrt hvað stofnun gerir sjálf og hvað er keypt að utan. Fjármögnun frá FJR tekur eingöngu til aðkeyptrar vinnu, ekki innri vinnu stofnunar sem þegar er unnin af starfsfólki á launum.
