Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

17. nóvember 2025

Uppflettingar læknis í sjúkraskrá og miðlun Landspítalans á viðkvæmum persónuupplýsingum

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli þar sem kvartað var yfir uppflettingum læknis á Landspítalanum í sjúkraskrá kvartanda og miðlun spítalans á viðkvæmum persónuupplýsingum kvartanda til Heilsugæslunnar [X].

Kvartandi taldi að umræddur læknir hefði ekki haft lögmæta ástæðu til uppflettinga í sjúkraskrá hennar þar sem læknirinn hefði ekki komið að meðferð hennar auk þess sem honum hefði verið meinað að taka þátt í henni. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að uppflettingarnar hefðu verið liður í að virða hið neikvæða meðferðarsamband sem kvartandi óskaði eftir og að læknirinn hefði ekki skoðað hina eiginlegu sjúkraskrá kvartanda, heldur takmarkað upplýsingaviðmót í Sögu sem nefnist mælingar. Var því talið að uppflettingar læknisins hefðu verið í samræmi við ákvæði 7. og 8. gr. þágildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000.

Hvað varðar síðarnefnda álitaefnið sendi Landspítalinn heilsufarsgögn kvartanda á Heilsugæsluna [X] en við meðferð málsins hjá Persónuvernd lagði kvartandi fram staðfestingu frá Heilsugæslunni [Y] um að hún hefði verið skráð þar með heimilislækni í fjölda ára. Var því talið að umrædd miðlun hefði ekki verið í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000.

Úrskurður

um kvörtun yfir uppflettingum læknis í sjúkraskrárkerfi Landspítalans og miðlun Landspítalans á viðkvæmum persónuupplýsingum í máli nr. 2025010350 (áður 2023030501):

Málsmeðferð

1. Hinn 9. mars 2023 barst Persónuvernd kvörtun frá [A] (hér eftir kvartandi) yfir uppflettingum tilgreinds sérfræðilæknis á Landspítalanum í sjúkraskrá hennar og miðlun Landspítalans á viðkvæmum persónuupplýsingum um hana.

2. Persónuvernd bauð hinum tilgreinda sérfræðilækni og Landspítalanum að tjá sig um kvörtunina með bréfi 17. október 2023. Bárust svör frá lækninum 18. desember 2023 og frá Landspítalanum 30. janúar 2024. Kvartanda var veittur kostur á að koma á framfæri athugasemdum við svör læknisins og Landspítalans með bréfi 21. febrúar 2024 og bárust þær 21. mars s.á. Með bréfi 16. ágúst s.á. óskaði Persónuvernd nánari upplýsinga af hálfu Landspítalans og bárust svör 4. september s.á. Kvartanda var á ný veittur kostur á að tjá sig um svör Landspítalans með bréfi 17. september s.á. og bárust svör 1. október s.á. Með bréfi 13. júní 2025 óskaði Persónuvernd frekari svara af hálfu Landspítalans og bárust svör 11. júlí s.á.

3. Við úrlausn málsins hefur verið tekið tillit til allra framangreindra gagna, þó ekki sé gerð sérstaklega grein fyrir þeim öllum í eftirfarandi úrskurði.

Ágreiningsefni

4. Ágreiningur er um heimild tilgreinds sérfræðilæknis á Landspítalanum til uppflettinga í sjúkraskrá kvartanda tiltekin þrjú skipti, [dags.], og heimild Landspítalans til miðlunar viðkvæmra persónuupplýsinga um kvartanda til Heilsugæslunnar [X], [dags.], en á þeim tíma kveðst kvartandi hafa verið skráð á Heilsugæsluna [Y].

Atvik máls og fyrirliggjandi gögn

5. Kvartandi eignaðist sitt fyrsta barn á Landspítalanum [dags.]. Í kjölfar fæðingarinnar kvartaði hún undan þeirri þjónustu sem henni var veitt á spítalanum. Árið [...] var kvartandi þunguð af sínu öðru barni og óskaði eftir því, með vísan til laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga, að enginn af þeim læknum og ljósmæðrum sem komu að fyrri fæðingu hennar kæmu að þeirri næstu og voru þær kröfur samþykktar af kvennadeild Landspítalans í [dags.]. Meðal þeirra lækna var sá sérfræðilæknir sem kvörtun máls þessa er beint að.

6. Fyrir liggur að hinn tilgreindi sérfræðilæknir á Landspítalanum sótti upplýsingar í sjúkraskrá kvartanda, undir viðmóti sem kallast lífsmarkaeiningin Mælingar, í þrjú skipti í [dags.], í tvígang fyrir fæðingu annars barns hennar [...] og einu sinni í kjölfar fæðingar barnsins [...]. Meðal gagna málsins er afrit af viðmótinu eins og það birtist í tölvum starfsmanna ásamt viðeigandi útskýringum frá Landspítalanum

7. Þá liggur einnig fyrir að Landspítalinn sendi heilsufarsgögn kvartanda á Heilsugæsluna [X] [dags.]. Telur kvartandi framangreinda miðlun brjóta gegn persónuverndarlögum og að heilsufarsgögn hennar hafi ekki átt að vera starfsfólki þeirrar heilsugæslu aðgengileg þar sem hún hafi verið skráð á Heilsugæsluna [Y]. Við meðferð málsins hjá Persónuvernd lagði kvartandi fram staðfestingarpóst frá Heilsugæslunni [Y] þess efnis að hún hafi verið skráð á þeirri stöð frá árinu [...]. Í póstinum kemur fram að kvartandi hafi leitað á hverfisheilsugæslu sína, [X], í tengslum við óléttu og voru skráð 16 samskipti á tímabilinu [dags.] til [dags.] s.á., en meðal þeirra eru símtöl og niðurstöður rannsókna. Á þeim tíma hafi hún engu að síður verið skráð í Heilsugæsluna [Y], að því er segir í staðfestingarpóstinum.

Sjónarmið aðila

Helstu sjónarmið kvartanda

8. Kvartandi byggir á því að tilgreindur sérfræðilæknir hafi ekki haft lögmæta ástæðu til uppflettinga í sjúkraskrá hennar á grundvelli laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár og 1. og 3. tölul. 1. mgr. 8. gr. þágildandi laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kvartandi telur að það hafi ekki verið nauðsynlegt vegna meðferðar, í skilningi 4. mgr. 13. gr. laga nr. 55/2009, fyrir tilgreindan lækni að hafa aðgang að eða fletta upp í sjúkraskrá hennar, hvort sem litið er til uppflettingar fyrir fæðingu barnsins eða í kjölfar fæðingar, enda hafi læknirinn ekki komið að meðferð kvartanda auk þess sem honum hafi verið meinað að taka þátt í henni.

9. Kvartandi telur rökstuðning Landspítalans og læknisins, þess efnis að uppflettingarnar hafi verið nauðsynlegar til að gæta að hinni neikvæðu meðferðarskyldu, ekki standast skoðun. Vísar kvartandi til þess að hún hafi eignast þriðja barn sitt á Landspítalanum í [dags.]. Þá hafi verið í gildi sömu kröfur um að áðurnefnt starfsfólk kæmi ekki að meðferð hennar en læknirinn hafi ekki flett kvartanda upp í kringum þá fæðingu og Landspítalinn ekki rökstutt hvers vegna uppfletting í sjúkraskrá hafi ekki verið talin nauðsynleg í það sinn.

10. Hvað varðar síðara álitaefni kvörtunarinnar telur kvartandi að umrædd miðlun Landspítalans á heilsufarsgögnum hennar til heilsugæslunnar [X] hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga nr. 55/2009 og nr. 74/1997. Þá byggir kvartandi á því að miðlunin hafi ekki verið í samræmi við 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 77/2000 um vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga og að Landspítalanum hafi borið að gera viðeigandi öryggisráðstafanir gegn óleyfilegum aðgangi að viðkvæmum persónuupplýsingum hennar, sbr. 1. mgr. 11. gr. sömu laga. Kvartandi vísar til þess að það hafi hvorki verið nauðsynlegt fyrir Heilsugæsluna [X] að vinna með persónuupplýsingar hennar, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 77/2000, né hafi skilyrði 9. gr. sömu laga verið uppfyllt. Í því sambandi byggir kvartandi á því að hún hafi aldrei breytt skráningu sinni á heilsugæslu með vísan til tveggja framlagðra gagna, sbr. efnisgrein 7. Breyting á skráningu á heilsugæslu án samþykkis eða vitundar hennar hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti eða kröfur sem gerðar eru til Landspítalans varðandi persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kvartandi vísar til þess að hún hafi fengið alla heimaþjónustu hjúkrunarfræðings, ungbarnavernd og aðra eftirfylgni hjá heilsugæslunni [Y]. Hins vegar hafi hún mætt í staka viðtalstíma í mæðravernd í [X] en þann [dags.] hafi ljósmóðir á þeirri heilsugæslu vísað kvartanda í mæðravernd á Landspítalanum. Slík atburðarrás hafi ekki getað, að mati kvartanda, jafngilt breyttri skráningu á heilsugæslu og heimilislækni.

Helstu sjónarmið tilgreinds sérfræðilæknis

11. Í skýringum sérfræðilæknisins kemur fram að hann hafi aflað sér upplýsinga um hvort sú staða gæti komið upp að hann yrði á fæðingarvakt þegar kvartandi kæmi inn í fæðingu. Ef slíkt hefði komið upp þá hefði hann þurft að kalla inn bakvakt til að sinna kvartanda. Samkvæmt skýringum læknisins til eftirlitsnefndar um rafræna sjúkraskrá og til Persónuverndar hafi tilgangurinn ekki verið að hnýsast í viðkvæm gögn um kvartanda heldur að verða við óskum hennar og tryggja öryggi meðferðarinnar. Í ljósi neikvæðu meðferðarskyldunnar kveðst læknirinn hafa brugðist við með mildasta hætti sem hið tæknilega umhverfi sjúkraskrárinnar hafi boðið upp. Hann hafi ekki opnað hið eiginlega sjúkraskrárkerfi Sögu heldur viðmót þar sem lágmarksupplýsingar birtast um sjúklinga.

Helstu sjónarmið Landspítalans

12. Landspítalinn vísar til þess að í þeim tilvikum þegar sjúklingur óskar eftir því að tiltekinn læknir komi ekki að meðferð hans bjóði tæknilegur búnaður ekki upp á að hægt sé að loka aðgangi einstakra starfsmanna að skrám einstakra sjúklinga. Framkvæmdin hafi verið á þann hátt að heilbrigðisstarfsmaður sé upplýstur um ákvörðun sjúklings, líkt og í máli kvartanda, og athugasemd þess efnis færð í svokallaðan belg sjúkraskrár sjúklings. Eftirlitskerfi sjúkraskrárkerfisins sjái svo um að hafa eftirlit með því að umræddur starfsmaður virði þær óskir. Ekki sé um að ræða sjálfvirka flöggun í umræddu kerfi heldur tryggt að fótspor myndist við hverja opnun sjúkraskrár.

13. Fram kemur í svörum Landspítalans 11. júlí 2025 að viðmótið Mælingar í Sögu sjúkraskrá sé eining sem er notuð til að skrá tölulegar upplýsingar um sjúklinga sem síðan eru birtar á textaformi og/eða á myndrænan hátt. Auðvelt sé að skrá slíkar mælingar fyrir marga sjúklinga í einu og fá yfirsýn með töflum og gröfum. Að sögn Landspítalans er ekki um að ræða opnun á sjúkraskrárkerfinu sjálfu heldur viðmót sem innihaldi óvarðar einingar sem sýna lífsmörk og mælingar. Enginn sjúkraskrártexti sé sýnilegur í þessu takmarkaða viðmóti. Vísað er til þess að eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá hafi tekið umræddar uppflettingar sérfræðilæknisins til meðferðar og í ljós hafi komið að læknirinn hafi ekki opnað hið eiginlega sjúkraskrárkerfi, heldur viðmót með lágmarksupplýsingum og í öllum tilvikum hafi aðgangurinn verið opinn í nokkrar sekúndur, allt frá 12 sekúndum upp í 25 sekúndur. Með bréfi Landspítalans 4. september 2024 fylgdi skjáskot af þessu viðmóti. Slík fjöldaskoðun byggir á sjúklingahópi sem birtist á skjánum en í mælieiningunni er hægt að sjá yfirlit yfir sjúklinga sem eru á starfseiningu viðkomandi starfsmanns í flipa sem nefnist Mínir sjúklingar. Þá segir í svörum Landspítalans að nafn og kennitala sé það sem er sýnilegt en smella þurfi á nafn sjúklings til að fá upp lífsmörk og aðrar mælingar. Samkvæmt svörum Landspítalans þá er ekki að sjá að sérfræðilæknirinn hafi smellt á nafn kvartanda með framangreindum hætti.

14. Í skýringum Landspítalans kemur fram að umræddar lágmarksupplýsingar séu í dag hluti af skjáborðsupplýsingum sem eru notaðar inni á öllum vinnuherbergjum starfsmanna til að veita yfirsýn yfir inniliggjandi sjúklinga. Skjáborð þessi hafi leyst eldri lausnir af hólmi, líkt og útprentun deildarlista og tússtöflur sem þurfti að viðhalda með handvirkum hætti. Að sögn Landspítalans hafi innleiðing skjáborðanna hafist árið 2012 og var að mestu lokið árið 2016. Eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá hafi athugað hvaða tæknilegu lausnir voru til staðar á kvennadeildum árið [...] og í ljós hafi komið að umrætt skjáborð var ekki komið í gagnið á þeim tíma sem hér um ræðir. Skjáborðin hafi verið innleidd á allar kvennadeildir árið 2018. Í svarbréfi Landspítalans segir að ekki sé hægt að svara með vissu hvort skjáborðið hafi orðið til þess að læknirinn hafi ekki flett kvartanda upp í lok árs [...].

15. Samkvæmt skýringum Landspítalans studdist uppfletting sérfræðilæknisins við vinnsluheimild 3. tölul. 1. mgr. 8. gr. þágildandi laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga þar sem vinnslan hafi verið nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila. Byggt er á því að samkvæmt þágildandi 3. og 4. mgr. (nú 4. og 5. mgr.) 13. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, þar sem kveðið er á um faglegar kröfur og ábyrgð heilbrigðisstarfsmanna, og vegna þess neikvæða meðferðarsambands sem kvartandi stofnaði til, hafi læknirinn þurft að gæta að því að kallað yrði til afleysingar ef kvartandi væri inniliggjandi á sama tíma og læknirinn væri á vakt. Ákveðin áskorun felist í því fyrir heilbrigðisstarfsmann að virða þær skyldur sem á hann eru lagðar með slíku banni enda býður starfsumhverfi viðkomandi læknis ekki endilega upp á að hægt sé að skipuleggja starfsemina í kringum séróskir einstaka sjúklings. Starfsmenn Landspítalans starfi oftar en ekki á vöktum og sú staða geti verið möguleg að einungis einn sérfræðilæknir sé á vakt. Ef sjúklingur hefur bannað viðkomandi sérfræðilækni að koma að meðferð sinni geti það ógnað öryggi sjúklings ef ekki er unnt að veita honum þá þjónustu sem skipulag starfseminnar gerir ráð fyrir. Í umrædd skipti, eftir að hafa fengið upplýsingar um að kvartandi væri þunguð á ný og ætti von á sér á ákveðnu tímabili, hafi læknirinn talið það nauðsynlegt að kanna hvort kvartandi væri búin að eignast barn sitt eða ekki. Læknirinn hafi skoðað áðurnefnt viðmót í sjúkraskrá kvartanda til að virða fyrirmæli hennar og tryggja bæði henni og ófæddu barni hennar gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Með því hafi læknirinn uppfyllt meginreglur 1.-3. tölul. 7. gr. laga nr. 77/2000.

16. Hvað síðara ágreiningsefnið varðar vísar Landspítalinn til þess að tilkynning um fæðingu fyrsta barns kvartanda hafi verið send á Heilsugæsluna [X] þann [dags.] og svo á Heilsugæsluna [Y] þann [dags.] sama ár. Við komu á Landspítalann og innritun í legu er sjúklingur spurður um tilteknar persónuupplýsingar og þær skráðar í sjúkraskrárkerfið, að því er fram kemur í gæðaskjali LSH-241 Saga – innritun í legu. Fyllt er út í reiti um heimilislækni, ofnæmi, aðstandendur o.s.frv. Ef viðkomandi sjúklingur hefur komið áður þarf að staðfesta slíkar upplýsingar við hverja nýja innritun eða þegar ný legu- eða ferillota er stofnuð. Jafnframt ber að staðfesta og uppfæra upplýsingarnar á sex mánaða fresti innan hverrar lotu. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu í breytingarsögu kvartanda, sem sýnir skráningu á heilsugæslu og heimilislækni, hafi hún verið skráð á Heilsugæsluna [X] á tímabilinu [dags.] til [dags.]. Síðarnefnda daginn hafi hún svo verið skráð á heimilislækni hjá Heilsugæslunni [Y]. Í samræmi við verklag Landspítalans, og samkvæmt þeim upplýsingum sem spítalinn vann eftir þann [dags.], var því umrædd tilkynning og meðfylgjandi upplýsingar sendar á Heilsugæsluna [X]. Metur Landspítalinn því svo að lögmætar og réttmætar ástæður hafi verið fyrir því að persónuupplýsingar kvartanda hefðu verið sendar á Heilsugæsluna [X].

Forsendur og niðurstaða

Lagaumhverfi

17. Mál þetta lýtur að uppflettingum læknis í sjúkraskrá kvartanda án heimildar og miðlun Landspítalans á viðkvæmum persónuupplýsingum kvartanda. Atvik þessa máls gerðust fyrir gildistöku núgildandi laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, þ.e. í [dags.] og [dags.]. Varðar málið því vinnslu persónuupplýsinga sem fellur undir gildissvið eldri laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000, og þar með valdsvið Persónuverndar, sbr. 2. mgr. 1. gr. og 1. og 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Umfjöllun og efnistök þessa úrskurðar takmarkast því við ákvæði laga nr. 77/2000.

18. Sá sem bar ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga samrýmdist lögum nr. 77/2000 var nefndur ábyrgðaraðili. Samkvæmt 4. tölul. 2. gr. laganna var þar átt við þann sem ákvað tilgang vinnslu persónuupplýsinga, þann búnað sem notaður var, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinga. Ábyrgðaraðili sjúkraskráa er skilgreindur í 12. tölul. 3. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár, sem heilbrigðisstofnun eða starfsstofa heilbrigðisstarfsmanna þar sem sjúkraskrár eru færðar. Almennt telst Landspítalinn vera ábyrgðaraðili að uppflettingum starfsmanna sinna í sjúkraskrá þegar þær eru framkvæmdar af þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem koma að meðferð sjúklings og þurfa á sjúkraskrárupplýsingum hans að halda vegna meðferðarinnar, sbr. 13. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrá. Fari starfsmaður hins vegar út fyrir aðgangsheimildir sínar samkvæmt fyrrgreindum lögum ber hann sjálfur ábyrgð á því.

19. Samkvæmt lögum nr. 77/2000 varð öll vinnsla persónuupplýsinga að falla undir eitthvert af heimildarákvæðum 8. gr. laganna. Má þar nefna að vinna mátti með persónuupplýsingar ef hinn skráði hafði ótvírætt samþykkt vinnsluna, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins, það hafi verið nauðsynlegt til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila. sbr. 3. tölul. lagaákvæðisins, eða það hafi verið nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni hins skráða, sbr. 4. tölul. lagaákvæðisins.

20. Ef um viðkvæmar persónuupplýsingar var að ræða þurfti vinnsla þeirra einnig að styðjast við eitt þeirra skilyrða sem í 9. gr. laganna greindi en samkvæmt c-lið 8. tölul. 2. gr. laga nr. 77/2000 falla upplýsingar um heilsuhagi undir skilgreiningu viðkvæmra upplýsinga. Í því máli sem hér er til umfjöllunar koma helst til álita ákvæði 2. og 8. tölul. 9. gr. laganna. Samkvæmt framangreindum ákvæðum var vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga heimil ef sérstök heimild stóð til vinnslunnar samkvæmt öðrum lögum, sbr. 2. tölul., og vinnslan var talin nauðsynleg vegna læknismeðferðar eða vegna venjubundinnar stjórnsýslu á sviði heilbrigðisþjónustu, enda væri hún framkvæmd af starfsmanni heilbrigðisþjónustunnar sem bundinn er þagnarskyldu, sbr. 8. tölul.

21. Við mat á því hvort heimild standi til umræddrar vinnslu, og eftir atvikum hvort skilyrði hafi verið uppfyllt fyrir vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga, verður einnig að líta til ákvæða annarra laga sem við eiga hverju sinni.

22. Um sjúkraskrár gilda lög nr. 55/2009. Í 2. gr. laganna segir að við færslu og varðveislu sjúkraskráa og aðgang að þeim skal mannhelgi og sjálfsákvörðunarréttur sjúklinga virtur, þess gætt að sjúkraskrár hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar og að sjúkraskrárupplýsingar eru trúnaðarmál. Sjúkraskrárupplýsingar eru skilgreindar í 4. tölul. 3. gr. laganna sem „[l]ýsing eða túlkun í rituðu máli, myndir, þ.m.t. röntgenmyndir, línurit og mynd- og hljóðupptökur sem innihalda upplýsingar er varða heilsufar sjúklings og meðferð hans hjá heilbrigðisstarfsmanni eða heilbrigðisstofnun og aðrar nauðsynlegar persónuupplýsingar“. Í 12. gr. laganna segir að aðgangur að sjúkraskrám er óheimill nema til hans standi lagaheimild samkvæmt ákvæðum laga þessara eða öðrum lögum. Í 1. mgr. 13. gr. laganna segir að heilbrigðisstarfsmenn sem koma að meðferð sjúklings og þurfa á sjúkraskrárupplýsingum hans að halda vegna meðferðarinnar skuli hafa aðgang að sjúkraskrá sjúklingsins með takmörkunum samkvæmt ákvæðum laganna og reglna settra á grundvelli þeirra. Þá kemur fram í 4. mgr. sama lagaákvæðis að sjúklingur eða umboðsmaður hans getur lagt bann við því að tiltekinn starfsmaður hafi aðgang að sjúkraskrá hans. Sé það hins vegar talið nauðsynlegt vegna meðferðar sjúklings að hinir tilteknu starfsmenn hafi aðgang að sjúkraskrá sjúklings skal upplýsa sjúkling um það og jafnframt að synjun um að heimila nauðsynlegan aðgang að sjúkraskránni geti jafngilt því, eftir atvikum, að sjúklingur hafni meðferð, sbr. lög um réttindi sjúklinga.

23. Fjallað er um skyldur heilbrigðisstarfsmanna í lögum nr. 34/2012. Segir m.a. í 1. mgr. 13. gr. laganna að heilbrigðisstarfsmaður skuli sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við faglegar kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma. Í þágildandi 3. og 4. mgr. sama lagaákvæðis sagði að heilbrigðisstarfsmaður beri ábyrgð á greiningu og meðferð sjúklinga sem til hans leita. Heilbrigðisstarfsmaður skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt og mögulegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

24. Auk heimildar samkvæmt framangreindu varð meðferð persónuupplýsinga að samrýmast meginreglum 1. mgr. 7. gr. laga nr. 77/2000. Þessar meginreglur kváðu meðal annars á um að persónuupplýsingar skyldu unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að öll meðferð þeirra væri í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins, að þær væru fengnar í yfirlýstum, skýrum, málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi, sbr. 2. tölul. lagaákvæðisins, og að þær væru nægilegar, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt var miðað við tilgang vinnslunnar, sbr. 3. tölul. lagaákvæðisins. Þá sagði í 4. tölul. ákvæðisins að persónuupplýsingar skyldu vera áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum og þær sem væru óáreiðanlegar eða ófullkomnar skyldi afmá eða leiðrétta.

Lögmæti uppflettinga sérfræðilæknis í sjúkraskrá kvartanda

25. Persónuvernd hefur almennt litið svo á að Landspítali teljist ábyrgðaraðili að uppflettingum starfsmanna sinna í sjúkraskrám, þegar þær eru framkvæmdar af þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem koma að meðferð sjúklings og þurfa á sjúkraskrárupplýsingum hans að halda vegna meðferðarinnar, sbr. 13. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár. Fari starfsmaður hins vegar út fyrir aðgangsheimildir sínar samkvæmt fyrrgreindum lögum ber hann sjálfur ábyrgð á því, sbr. einnig umfjöllun í efnisgrein 18. Í því tilviki sem hér um ræðir þarf því að taka afstöðu til þess hvort sérfræðilækninum var heimil sú vinnsla persónuupplýsinga sem kvörtunin lýtur að.

26. Fyrir liggur að kvartandi óskaði eftir því að umræddur læknir myndi ekki koma að fæðingu annars barns hennar, sbr. umfjöllun í efnisgreinum 5 og 8. Sérfræðilæknirinn og Landspítalinn hafa byggt á því að læknirinn hafi þurft að bregðast við því neikvæða meðferðarsambandi sem kvartandi hafði stofnað til og ganga úr skugga um að annar læknir væri skráður á bakvakt ef sá möguleiki væri fyrir hendi að umræddur læknir væri á fæðingarvakt þegar kvartandi væri inniliggjandi.

27. Eins og hér háttar til liggur ekki annað fyrir en að sérfræðilæknirinn hafi verið að gegna störfum sínum í [...] Landspítalans þegar umræddar uppflettingar í sjúkraskrá kvartanda fóru fram. Þá verður talið að uppflettingarnar hafi verið liður í að virða og tryggja fyrrgreindar kröfur kvartanda um að umræddur sérfræðilæknir myndi ekki koma að fæðingu annars barns hennar í [dags.]. Jafnframt verður talið að viðkomandi læknir hafi gripið til viðeigandi og nægilegra ráðstafana í því skyni að bregðast við kröfum kvartanda en í því sambandi er litið til þess að hann opnaði einungis hið svonefnda viðmót mælingar. Er því ekki um það að ræða að sérfræðilæknirinn hafi skoðað hina eiginlegu sjúkraskrá kvartanda, með tilheyrandi viðkvæmum persónuupplýsingum, heldur takmarkað viðmót Sögu sjúkraskrárkerfis þar sem fjöldaskoðun fer fram á nöfnum og kennitölum sjúklinga á viðkomandi starfseiningu, sbr. umfjöllun í efnisgrein 13. Líkt og að framan greinir eru þessar upplýsingar í dag hluti af skjáborðsupplýsingum inn á vinnuherbergjum starfsmanna til að veita yfirsýn yfir inniliggjandi sjúklinga, sbr. efnisgrein 14. Þá liggur einnig fyrir að eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá tók málið til meðferðar og komst að þeirri niðurstöðu að aðgangurinn hafi aðeins verið opinn í nokkrar sekúndur, sbr. umfjöllun í efnisgrein 13.

28. Að öllu framangreindu virtu telur Persónuvernd að tilgreindum sérfræðilækni hafi verið heimilt að fletta kvartanda upp í Sögu sjúkraskrá í umrædd þrjú skipti í [dags.], með vísan til 3. tölul. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 77/2000, og jafnframt telst Landspítalinn ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem í því fólst. Þá telur Persónuvernd einnig að vinnsla persónuupplýsinga kvartanda hafi verið í samræmi við ákvæði 1.-3. tölul. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 77/2000, þar sem þær hafi verið unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti, í yfirlýstum og skýrum tilgangi og að vinnslan hafi verið nægileg, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilganginn.

Lögmæti miðlunar á viðkvæmum persónuupplýsingum um kvartanda til Heilsugæslunnar [X]

29. Fyrir liggur að heilsufarsgögn um kvartanda og barn hennar voru send til Heilsugæslunnar [X]. Við meðferð málsins kvaðst kvartandi hafa verið skráð hjá Heilsugæslunni [Y] frá [...], með sama heimilislækni til fjölda ára og lagði hún fram staðfestingu þess efnis, sbr. umfjöllun í efnisgreinum 7 og 10. Í skýringum Landspítalans kom fram að kvartandi hafi verið skráð í kerfum spítalans í samlagi hjá Heilsugæslunni [X] frá [dags.] til og með [dags.] en líkt og að framan greinir eignaðist kvartandi sitt fyrsta barn í [dags.].

30. Með vísan til fyrirliggjandi gagna verður ekki annað ráðið en að kvartandi hafi verið skráð í Heilsugæsluna [Y] á þeim tíma sem hún var barnshafandi af sínu fyrsta barni, þó svo að hún hafi sótt einstaka viðtalstíma í mæðravernd hjá Heilsugæslunni [X]. Gegn þeirri staðfestingu á skráningu sem kvartandi hefur lagt fram telur Persónuvernd að Landspítalinn hafi ekki sýnt fram á að heimilt hafi verið að senda viðkvæmar persónuupplýsingar um kvartanda til Heilsugæslunnar [X]. Þá hefur Landspítalinn í svörum sínum til Persónuverndar, dags. 24. janúar 2024, sagt harma þau mistök að upplýsingarnar hafi verið sendar á ranga heilsugæslu.

31. Að framangreindu virtu er það niðurstaða Persónuverndar að umrædd miðlun Landspítalans á heilsufarsupplýsingum um kvartanda til Heilsugæslunnar [X] var ekki í samræmi við ákvæði 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 9. gr., sbr. 4. tölul. 1. mgr. 7. gr., laga nr. 77/2000.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Uppflettingar tilgreinds sérfræðilæknis í sjúkraskrá [A] voru í samræmi við þágildandi ákvæði laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Miðlun Landspítalans á heilsufarsupplýsingum kvartanda til Heilsugæslunnar [X] samrýmdist ekki ákvæðum 1. mgr. 8. gr., 1. mgr. 9. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 7. laga nr. 77/2000.

Persónuvernd, 17. nóvember 2025

Edda Þuríður Hauksdóttir Stefán Snær Stefánsson

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820