Rafræn skilríki og persónuvernd
Rafræn skilríki eru persónuskilríki sem notuð eru í rafrænum heimi. Það að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum jafngildir því að framvísa persónuskilríkjum.
Rafræn skilríki er hægt að nota til fullgildrar undirritunar og jafngildir hún eigin undirritun.
Rafræn skilríki geta verið einkaskilríki eða starfsskilríki. Einkaskilríki eru ætluð einstaklingum svo þeir geti auðkennt sig á Netinu og undirritað skjöl rafrænt.
Á vefsíðunni skilriki.is, sem Auðkenni heldur úti, er að finna allar helstu upplýsingar um rafræn skilríki.
