Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Gjaldskrá vegna eftirlits Persónuverndar með vinnslu persónuupplysinga

1. gr.

Gildissvið.

Gjaldskrá þessi gildir um greiðslu kostnaðar sem hlýst af eftirliti með því að ábyrgðaraðilar fullnægi skilyrðum laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og reglna sem settar eru samkvæmt þeim eða einstökum fyrirmælum, sbr. VII. kafla þeirra laga.

2. gr.

Tímagjald.

Innheimta skal gjald vegna kostnaðar sem hlýst af aðkeyptri sérfræðiþjónustu sem nauðsynleg er vegna eftirlits Persónuverndar. Fjárhæð gjaldsins fyrir hverja unna klukkustund skal að hámarki vera sem hér segir:

a. Sérfræðingur á sviði tölvurannsókna kr. 29.900

b. Sérfræðingur á sviði [öðru sviði]1 kr. 21.000

Fjárhæðir samkvæmt 1. mgr. innihalda ekki virðisaukaskatt.

Fjárhæðir samkvæmt 1. mgr. skulu breytast þann 1. janúar ár hvert í samræmi við breyt­ingar á vísitölu neysluverðs. Grunnvísitala er 485,1 (vísitala ágústmánaðar 2020).

3. gr.

Ferðakostnaður.

Innheimta skal gjöld vegna kostnaðar sem hlýst af greiðslum fyrir akstur og dagpeninga til aðkeyptra sérfræðinga samkvæmt 2. gr. Fjárhæð gjalda skal vera í samræmi við reglur ferðakostn­aðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem í gildi eru á hverjum tíma.

4. gr.

Fjöldi gjaldeininga.

Gjaldeiningar samkvæmt 2. og 3. gr. skulu ákvarðaðar og innheimtar samkvæmt reikningi sér­fræðinga, þó með þeirri undantekningu sem greinir í 2. mgr. 5. gr.

5. gr.

Upplýsingaskylda og hámarksfjárhæð gjalds.

Með rökstuddum hætti skal Persónuvernd tilkynna ábyrgðaraðila um þörf á aðkeyptri sérfræði­þjónustu samkvæmt 2. gr., svo fljótt sem stofnunin verður þess áskynja.

Í tilkynningu samkvæmt 1. mgr. skal tilgreina sundurliðað hámarksgjald sem lagt verður á ábyrgðar­aðila samkvæmt gjaldskrá þessari. Í sundurliðun skal gerð grein fyrir áætluðum fjölda vinnu­stunda sérfræðings, tímagjaldi samkvæmt 2. gr., og áætluðum ferðakostnaði samkvæmt 3. gr.

6. gr.

Innheimta.

Persónuvernd innheimtir gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

7. gr.

Gildistaka og lagaheimild.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 40. gr. laga nr. 90/2018, tekur þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 21. október 2020.2

1) Auglýsing B deild Stjórnartíðinda dags. 11. júní 2024

2) Auglýsing B deild Stjórnartíðinda dags. 21. október 2020

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820