Vinnsla persónuupplýsinga af hálfu Keldunnar ehf.
17. október 2025
Stjórn Persónuverndar hefur úrskurðað í máli þar sem kvartað var yfir skráningu Keldunnar ehf. í gagnagrunn um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla.

Kvörtunin laut að því að Keldan ehf. hefði safnað persónuupplýsingum um barn kvartanda og skráð þær á svokallaðan PEP-lista en skráningin byggðist á stöðu kvartanda sem staðgengill sendiherra.
Niðurstaða Persónuverndar var að vinnslan væri Keldunni ehf. heimil á grundvelli 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 og f-liðar 1. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679. Einnig komst Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að vinnslan hefði verið í samræmi við meginreglur 1. og 3. tölul. 1. mgr. 8. gr. laganna og a- og c-liðar 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.
