Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vinnsla persónuupplýsinga á vinnustöðum í tengslum við sóttvarnir (COVID-19)

6. mars 2020

Á vinnustöðum getur verið nauðsynlegt að skrá niður lágmarksupplýsingar í tengslum við útbreiðslu COVID-19 veirunnar, í þeim tilgangi að hefta útbreiðslu hennar og til að tryggja öryggi og heilbrigði á vinnustað. Vegna þessa hefur Persónuvernd gefið út <a href="/fyrirtaeki-og-stjornsysla/spurt-og-svarad/allar-spurningar-og-svor/vinnsla-personuupplysinga-a-vinnustodum-i-tengslum-vid-sottvarnir-covid-19" class="internal">leiðbeiningar til atvinnurekenda</a> hvað þetta varðar.&nbsp;

Á vinnustöðum getur verið nauðsynlegt að skrá niður lágmarksupplýsingar í tengslum við útbreiðslu COVID-19 veirunnar, í þeim tilgangi að hefta útbreiðslu hennar og til að tryggja öryggi og heilbrigði á vinnustað.

Mikilvægt er að starfsmenn fái fullnægjandi fræðslu um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer. Einnig þarf að gæta að meðalhófi við skráningu.

Persónuvernd leiðbeinir atvinnurekendum því um að óska einungis eftir upplýsingum sem þörf er á og miða frekar við „já eða nei“ spurningar til þess að meta áhættuna og hefta útbreiðslu veirunnar.

Dæmi um slíkar spurningar eru eftirfarandi:

1. Ertu að koma frá áhættusvæði? Já/Nei

2. Finnur þú fyrir einkennum COVID-19 á borð við höfuðverk, hita, beinverki og andþyngsli? – Já/Nei

3. Hefur þú umgengist einhvern sem kom nýlega frá skilgreindu áhættusvæði? – Já/Nei

Veita þarf starfsmönnum viðeigandi leiðbeiningar um hvernig sé rétt að bregðast við ef einhverjum af þessum spurningum er svarað játandi.

Viðskráningu fjarveru þarf einnig að gæta meðalhófs og eingöngu skrá lágmarksupplýsingar til að tryggja rétta launaafgreiðslu.

Frekari upplýsingar fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu vegna COVID-19 má finna á vefsíðu embættis landlæknis.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820