Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu: Áminning til stjórnmálahreyfinga og hagsmunaaðila

27. ágúst 2026

Vegna ábendinga sem Persónuvernd hafa borist um óumbeðin fjarskipti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag, þar á meðal um símhringingar, SMS og tölvupósta til einstaklinga, telur stofnunin rétt að vekja athygli stjórnmálahreyfinga, hagsmunasamtaka og annarra á eftirfarandi:

Við notkun persónuupplýsinga í markaðssetningu, þar á meðal á samfélagsmiðlum, þurfa hagsmunaaðilar að tryggja að vinnslan samrýmist persónuverndarlögum. Gæta þarf þess að heimilt sé að nota persónuupplýsingar, t.d. nöfn, símanúmer, heimilisföng og netföng í markaðssetningu, og að upplýst sé hvaðan þau koma og að veittur sé kostur á andmælum. Ekki er mælt með notkun „Eigin markhópa“ (e. custom audiences) eða „Líkindamarkhópa“ (e. lookalike audiences) til að beina auglýsingum að tilteknum einstaklingum á Facebook.

Þá bendir Persónuvernd á að við notkun gervigreindar þarf að gæta fræðsluskyldu og gagnsæis. Merkja skal skýrt ef myndir eða myndskeið eru gervigreindargögn, forðast djúpfalsað efni sem getur blekkt kjósendur og staðreyna upplýsingar áður en þær eru birtar.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820