Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
11. september 2026
Persónuvernd hafa borist samtals 54 ábendingar og kvartanir vegna óumbeðinna fjarskipta og vinnslu persónuupplýsinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026, um hvort Ísland skyldi hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Persónuvernd hefur framsent erindi sem lúta að óumbeðnum fjarskiptum og mögulegu broti á lögum nr. 70/2022 um fjarskipti til Fjarskiptastofu, í samræmi við 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Þá hefur Persónuvernd hafið frumkvæðisathuganir á vinnslu persónuupplýsinga, í tengslum við framangreinda þjóðaratkvæðagreiðslu hjá öllum stjórnmálaflokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi og samtökunum Já 2026 (SJÁ) og Áfram Ísland.
