Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vegna fréttatilkynningar Neytendasamtakanna og ASÍ um starfsleyfisskilmála Creditinfo

24. júní 2020

Að gefnu tilefni vill Persónuvernd taka eftirfarandi fram vegna fréttatilkynningar sem Neytendasamtökin og ASÍ birtu í dag:

Samkvæmt gildandi löggjöf hefur Persónuvernd það hlutverk að veita leyfi til starfsemi fjárhagsupplýsingastofa. Á grundvelli eldri persónuverndarlöggjafar var sett reglugerð um slíka starfsemi sem enn er í gildi, en reglugerð með stoð í hinni nýju löggjöf hefur ekki verið sett. Í ljósi þeirrar tafar sem orðið hefur á setningu reglugerðarinnar hefur gerð nýrra skilmála seinkað. Þar sem ófyrirséð er hvenær reglugerð verður sett telur Persónuvernd ekki ástæðu til að bíða hennar lengur. Þess er því að vænta að skilmálar verði gefnir út að nýju og verða þeir settir í umsagnarferli eins og Neytendasamtökunum og ASÍ hefur verið greint frá.

Hvað það varðar að um ræði viðkvæmar persónuupplýsingar skal tekið fram að fjárhagsupplýsingar falla ekki undir skilgreiningu persónuverndarlöggjafar á slíkum upplýsingum. Hins vegar er jafnframt ljóst að gera verður sérstakar ráðstafanir við vinnslu persónuupplýsinga hjá fjárhagsupplýsingastofum og fella hana undir ströng skilyrði.

Einnig skal tekið fram, hvað varðar hugsanlegan hag fjárhagsupplýsingastofu af brotum áskrifenda, að hækkuðu áskriftargjaldi vegna brota er ætlað að fela í sér viðurlög gagnvart þeim sem ekki fara að skilmálum, en jafnframt verður ítrekun í annað sinn til þess að segja verður upp samningi við viðkomandi áskrifanda.

Þá skal tekið fram að ekki er á því byggt í leyfisskilmálum að hinn skráði þurfi að færa sönnur á skuldleysi sitt og verður það séð af upptalningu skilmálanna á því hvenær skráning er heimil, sem og því að vinnsla upplýsinga um umdeildar skuldir er óheimil þar til þær hafa verið staðfestar með opinberri réttargerð.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820