Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Úttekt á vinnslu persónuupplýsinga hjá Creditinfo Lánstrausti hf.

9. nóvember 2026

Persónuvernd hefur hafið úttekt á vinnslu persónuupplýsinga hjá Creditinfo Lánstrausti hf. Við ákvörðun um að hefja úttektina var meðal annars litið til stefnu Persónuverndar fyrir árið 2026, en samkvæmt stefnunni er vinnsla fjárhagsupplýsinga í forgangi á árinu.

Markmið úttektarinnar er að athuga hvort þær persónuupplýsingar, sem Creditinfo Lánstraust hf. notar við gerð skýrslna um lánshæfi einstaklinga og lögaðila, veiti annars vegar áreiðanlegar og afgerandi vísbendingar um líkindi þess að lánssamningar séu efndir og hins vegar að upplýsingarnar séu nauðsynlegar við framkvæmd lánshæfismatsins.

Tekið skal fram að ákvörðun um úttekt hjá aðila felur ekki í sér að Persónuvernd telji að ekki sé farið að lögum við vinnslu persónuupplýsinga hjá honum.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820