Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Uppfærð skrá yfir tegundir vinnslu þar sem krafist er mats á áhrifum á persónuvernd

4. október 2019

Persónuvernd hefur nú birt uppfærða skráyfir tegundir vinnslu þar sem skylt er að framkvæma mat á áhrifum fyrirhugaðra vinnsluaðgerða á vernd persónuupplýsinga áður en vinnslan hefst. Skráin var birt þann 19. september sl. í B-deild Stjórnartíðinda og kemur í stað fyrri skrár, sem birt var þann 27. mars 2019. Ekki hafa verið gerðar efnislegar breytingar á skránni að því er varðar þær vinnsluaðgerðir sem þar eru tilteknar, heldur er fyrst og fremst um að ræða smávægilegar lagfæringar á orðalagi.

Persónuvernd áréttar að það er á ábyrgð ábyrgðaraðila að meta í hverju tilfelli fyrir sig, hvort vinnsla krefjist þess að framkvæmt sé mat á áhrifum á persónuvernd, þegar hana er ekki að finna í skránni.

Skráin er aðgengileg undir hnappnum „Lög og reglur“ á vefsíðu Persónuverndar.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820