Umsögn Persónuverndar vegna erindis Samtaka atvinnulífsins o.fl. um breytingar á persónuverndarlögum
3. nóvember 2021
Á vef Viðskiptaráðs Íslands í gær birtist grein undir fyrirsögninni „Lagalegt regluverk óskast“. Í greininni er m.a. fullyrt að innleiðing persónuverndarreglugerðar ESB hafi verið mun meira íþyngjandi hér á landi heldur en annars staðar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þar er því m.a. haldið fram að gengið hafi verið lengra en þörf er á, t.d. með sérreglum um leyfisveitingar og víðtækum valdheimildum Persónuverndar.
Í því skyni að stuðla að upplýstri og gagnsærri umræðu í þjóðfélaginu um persónuverndarmálefni og um persónuverndarlöggjöf telur Persónuvernd rétt að birta umsögn sína frá 9. febrúar 2021 til dómsmálaráðuneytis vegna erindis Samtaka atvinnulífsins o.fl. um breytingar á persónuverndarlögum. Í 1., 6. og 7. kafla í umsögn Persónuverndar er m.a. farið yfir afstöðu Persónuverndar og dregnar fram staðreyndir um þau atriði sem nefnd eru í frétt Viðskiptaráðs í gær, auk annarra atriða sem óskað var umsagnar um.
Umsögn Persónuverndar til dómsmálaráðuneytis, dags. 9.febrúar 2021.