Tveir nýir starfsmenn hjá Persónuvernd
5. febrúar 2026
Eleonora Bergþórsdóttir og Kristín Fjóla Fannberg hafa verið ráðnar lögfræðingar hjá Persónuvernd.

Eleonora hefur víðtæka starfsreynslu á sviði persónuverndar, en hún starfaði um árabil sem lögmaður á því sviði og var lögfræðingur í persónuverndarteymi regluvörslu Arion banka. Hún útskrifaðist með Mag. Jur. meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og með diplómagráðu frá Edinborgarháskóla á sviði upplýsingatækniréttar árið 2023.
„Ég er spennt að ganga til liðs við Persónuvernd og fást við verkefnin þar og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í stafrænu og síbreytilegu umhverfi“.
Kristín Fjóla hefur umfangsmikla reynslu og þekkingu á löggjöf á fjármálamarkaði, opinberu eftirliti og gæðastýringu. Hún hefur m.a. starfað hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Kortaþjónustunni, Fjármálaeftirlitinu, Dróma og Íslandsbanka. Kristín Fjóla lauk Cand. Jur. prófi frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 2001 og hlaut héraðsdómsréttindi árið 2003.
„Ég hlakka til að hefja störf hjá Persónuvernd og verða partur af því öfluga teymi sem þar er að finna.“
„Það er okkur mjög mikilvægt að fá til liðs við okkur starfsmenn með þá reynslu sem Eleonora og Kristín Fjóla búa yfir. Ráðning þeirra endurspeglar áherslur okkar á traust, áreiðanleika og þekkingu og styrkir starfsemi okkar bæði faglega og sem heild,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.
