TikTok sektað um 530 milljónir evra vegna ólöglegra gagnaflutninga til Kína
2. maí 2025
Írska persónuverndarstofnunin (DPC) hefur sektað TikTok um samtals 530 milljónir evra (tæplega 80 milljarða íslenskra króna) og fyrirskipað úrbætur vegna brota á persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins. Þetta kemur í kjölfar rannsóknar á gagnaflutningum TikTok frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) til Kína og ófullnægjandi upplýsingagjöf til notenda.

Rannsókn írsku persónuverndarstofnunarinnar leiddi í ljós að TikTok brást skyldum sínum samkvæmt persónuverndarreglugerðinni, þar sem fyrirtækið tryggði ekki að persónuupplýsingar EES-notenda sem voru aðgengilegar frá Kína nytu sambærilegrar verndar og innan ESB. Einnig var upplýsingagjöf TikTok til notenda talin ófullnægjandi, einkum á árunum 2020 til 2022.
Þá tilkynnti TikTok í apríl 2025 að hluti gagna hefði í raun verið vistaður á netþjónum í Kína, þvert á fyrri yfirlýsingar fyrirtækisins, sem írska persónuverndarstofnunin tekur mjög alvarlega.
Auk sektarálagningarinnar hefur TikTok verið gert að færa vinnsluna til samræmis við persónuverndarreglugerðina innan sex mánaða, að öðrum kosti verði gagnaflutningar til Kína stöðvaðir.
Frétt írsku persónuverndarstofnunarinnar má nálgast í heild sinni hér.