Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þrír fundir um persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum

5. október 2026

Samtök iðnaðarins og Persónuvernd undirbúa þrjá fundi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum. Markmiðið er að efla samtal um persónuvernd, nýsköpun og góða starfshætti við þróun og notkun nýrra tæknilausna.

Fulltrúar SI og Persónuverndar hittust á dögunum þar sem rætt var hvernig styðja megi við nýsköpun og þróun tæknilausna samhliða því að tryggja persónuvernd og réttindi notenda.

Opið samtal og hagnýt fræðsla

Fundirnir þrír eiga að skapa vettvang fyrir opið samtal milli fyrirtækja og Persónuverndar, efla sameiginlegan skilning og stuðla að miðlun góðra starfshátta.

Áhersla verður lögð á hagnýta fræðslu og raunveruleg viðfangsefni fyrirtækja, meðal annars varðandi framkvæmd persónuverndarreglna (GDPR). Með auknu samtali og þekkingarmiðlun er stefnt að því að auka þekkingu fyrirtækja á persónuvernd og stuðla að auknum fyrirsjáanleika í framkvæmd.

Fyrsti fundurinn í nóvember

Fyrsti fundurinn er fyrirhugaður í nóvember. Í framhaldinu er stefnt að fræðslufundum og/eða vinnustofum þar sem fyrirtækjum gefst kostur á að koma spurningum sínum og reynslu á framfæri.

Nánari upplýsingar um tímasetningar, dagskrá og þátttöku á fundunum þremur verða kynntar síðar.

Með fundaröðinni vilja SI og Persónuvernd stuðla að skýrara og fyrirsjáanlegra umhverfi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði, þar sem nýsköpun og ábyrg meðferð persónuupplýsinga geta farið saman.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820