Svar við erindi frá sóttvarnalækni vegna bólusetningar barna
5. janúar 2022
Veitt hefur verið svar við erindi frá sóttvarnalækni þar sem spurt er hvort leyfi þurfi til vinnslu persónuupplýsinga í aðdraganda bólusetningar barna við COVID-19. Því er svarað til að ekki sé um að ræða vinnslu sem falli undir leyfisskyldu hjá stofnuninni. Þá er leiðbeint um að gæta þurfi að einkalífsrétti barna. Bréf Persónuverndar til sóttvarnalæknis, dags. 5. janúar 2022.