Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Stokkhólmsyfirlýsingin undirrituð

26. maí 2026

Þann 21.–22. maí 2026 komu persónuverndaryfirvöld frá Danmörku, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Álandseyjum og Svíþjóð saman í Stokkhólmi á árlegum norrænum fundi sínum.

Markmið norrænu fundanna er að ræða málefni líðandi stundar á sviði persónuverndar og miðla góðum starfsháttum. Slíkir norrænir fundir hafa verið haldnir frá árinu 1988.

Á fundinum var undirrituð sérstök yfirlýsing, Stokkhólmsyfirlýsingin, þar sem komu fram sameiginlegar áherslur stofnananna og að þær munu halda áfram öflugu samstarfi sínu á grundvelli sameiginlegra norrænna gilda.

Þá ræddu norrænu persónuverndaryfirvöldin áhrif núverandi stöðu í alþjóðamálum á persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Þau ræddu einnig ýmis önnur málefni, öll með það að markmiði að ná fram jafnvægisleitandi og enn hagkvæmari nálgun við framkvæmd ólíkra verkefna sinna. Persónuverndaryfirvöldin viðurkenndu þörfina á frekara samstarfi við önnur eftirlitsyfirvöld, einkum með hliðsjón af þeim mörgu reglum sem skarast á sviði stafrænnar þróunar og persónuverndar, svo sem gervigreindarlögunum (AI Act) og gagnalögunum (Data Act).

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820