Stafrænt fullveldi og upplýsingaöryggi – Persónuvernd á Lagadeginum
21. september 2026
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, flutti erindi á aðalmálstofu Lagadagsins, sem var haldinn þann 18. september síðastliðinn.
Að þessu sinni var aðalmálstofa Lagadagsins tileinkuð hugtakinu „stafrænu fullveldi“ út frá réttaröryggi, efnahagslegu öryggi og upplýsingaöryggi og að hverju íslenska ríkið þarf að huga við innleiðingu gervigreindarlausna. Erindi Helgu laut að upplýsingaöryggi og fullveldi og fjallaði hún um stöðu Evrópu í kapphlaupinu við Bandaríkin og Kína, sem og skýjasamninga íslenska ríkisins.
