Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Persónuvernd óskar eftir upplýsingum frá dómstólum um birtingu persónugreinanlegra upplýsinga í dómsúrlausnum á Netinu

26. maí 2021

Persónuvernd hefur undanfarið haft til athugunar birtingu dómstóla á persónuupplýsingum í dómsúrlausnum á vefsíðum dómstólanna. Málið er til komið vegna ábendinga sem borist hafa stofnuninni um að í úrskurðum og dómum sem birtir eru á vefsíðu dómstólanna megi í einhverjum tilvikum finna persónugreinanlegar upplýsingar um einstaklinga, þar sem þær ættu að hafa verið afmáðar.

Persónuvernd hefur fram til þessa verið í samskiptum við dómstólasýsluna vegna þessa en nú hefur jafnframt verið óskað eftir skýringum frá dómstólum landsins (þ.e. héraðsdómstólum, Landsdómi, Hæstarétti og Félagsdómi), meðal annars um það hvernig birting tiltekinna dóma samrýmist ákvæðum persónuverndarlaga nr. 90/2018, laga nr. 50/2016 um dómstóla og reglna dómstólasýslunnar nr. 3/2019 um birtingu dóma og úrskurða á vefsíðu dómstólanna. Þá er einnig til skoðunar hvernig birting persónuupplýsinga í eldri dómum, sem upphaflega voru birtir í gildistíð eldri laga og reglna, samrýmist persónuverndarsjónarmiðum.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820