Persónuvernd hefur lokið úttektum á vinnslu persónuupplýsinga hjá ákæruvaldinu
4. júní 2026
Persónuvernd hefur lokið úttektum á vinnslu persónuupplýsinga hjá þeim sem fara með ákæruvald hér á landi, þ.e. ríkissaksóknara, héraðssaksóknara og lögreglustjórum.

Úttektirnar voru boðaðar í kjölfar fréttaflutnings um meintan stuld tveggja fyrrverandi lögreglumanna á gögnum úr rannsóknum lögreglu og embættis sérstaks saksóknara. Með úttektunum var meðal annars leitast við að staðreyna hvort úttektaraðilar tryggðu viðunandi öryggi persónuupplýsinga í rafrænum sönnunargögnum, með hliðsjón af þeirri hættu sem kann að stafa af því að þeir sem starfa á vegum embættanna hagnýti umræddar upplýsingar á ólögmætan hátt.
Þrátt fyrir vísbendingar um að öryggisráðstafanir hafi ekki að öllu leyti verið innleiddar með viðunandi hætti hjá úttektaraðilum, ákvað Persónuvernd að ljúka úttektunum með leiðbeiningum um þær kröfur sem leiddar verða af lögum um öryggi persónuupplýsinga. Við þá ákvörðun var einkum litið til þess að embætti ríkislögreglustjóra rekur og ber ábyrgð á upplýsingakerfum lögreglu og virkni sumra öryggisráðstafana kann að vera háð því að embættið viðhafi í reynd tilteknar tæknilegar ráðstafanir í upplýsingakerfunum. Þá hefur stofnunin hafið úttekt hjá ríkislögreglustjóra í því skyni að kanna öryggi persónuupplýsinga í upplýsingakerfum sem embættið útvegar ákærendum. Að ári liðnu frá lokum þeirrar úttektar áformar Persónuvernd að hefja á ný athugun hjá ákærendum til að kanna hvernig öryggisráðstöfunum er háttað. Verður í því sambandi litið til þess hvort farið sé að fyrrgreindum leiðbeiningum Persónuverndar.
