Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Öryggisbrestur hjá Facebook

3. október 2018

Facebook hefur tilkynnt um öryggisbrest sem varðar um 50 milljón notendur. Í síðustu viku var írsku persónuverndarstofnuninni tilkynnt um öryggisbrest hjá Facebook. Öryggisbresturinn varðar um 50 milljón notendur hjá fyrirtækinu. Persónuvernd fylgist grannt með framvindu málsins og hefur í því sambandi óskað eftir upplýsingum um hvort einstaklingar, staðsettir á Íslandi, hafi verið meðal þeirra sem urðu fyrir öryggisbrestinum. Ef svo reynist má gera ráð fyrir að Persónuvernd taki þátt í rannsókn málsins ásamt öðrum evrópskum persónuverndarstofnunum.

Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni er persónuverndarstofnunin í því landi þar sem viðkomandi fyrirtæki er með höfuðstöðvar svokallað forystustjórnvald við rannsókn mála. Í tilviki Facebook er írska persónuverndarstofnunin forystustjórnvaldið en aðrar persónuverndarstofnanir innan EES geta tekið þátt í rannsókn mála ef málið varðar þá sem eru staðsettir í öðrum ríkjum innan svæðisins.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820