Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðgengill forstjóra

11. desember 2020

Frá og með 11. desember 2020 verður Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri erlends samstarfs og fræðslu, staðgengill forstjóra Persónuverndar.

Vigdís lauk meistaraprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2009. Frá 2008 til 2010 var hún lögfræðingur hjá iðnaðarráðuneyti. Vigdís hefur starfað hjá Persónuvernd frá árinu 2010. Árið 2016 varð hún verkefnastjóri EES-mála hjá stofnuninni, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis frá 2018 og frá árinu 2019 hefur hún gegnt stöðu sviðsstjóra erlends samstarfs og fræðslu.

Vigdís sækir fundi, f.h. Persónuverndar, hjá Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB) og er aðalfulltrúi stofnunarinnar í Netöryggisráði. Hún hefur jafnframt tekið þátt í margvíslegu öðru innlendu og erlendu samstarfi á sviði persónuverndar, setið í nefndum og ráðum fyrir stjórnvöld, sinnt kennslu í persónuvernd á háskólastigi og haldið fjölda fyrirlestra um málefni tengd persónuvernd á innlendum og erlendum vettvangi.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820