Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Norrænar persónuverndarstofnanir halda áfram nánu samstarfi

8. maí 2019

Forstjóri Persónuverndar, ásamt forstjórum systurstofnana sinna á Norðurlöndunum, undirrituðu í gær yfirlýsingu um aukna samvinnu á sviði persónuverndarmála á árlegum samstarfsfundi stofnananna. Tilgangur yfirlýsingarinnar er að styrkja enn frekar norræna samvinnu, meðal annars með því að vinna saman að stefnumótun á sviði eftirlitsaðgerða og auka upplýsingaskipti á milli stofnananna.

Norrænu persónuverndarstofnanirnar hafa lengi átt með sér samvinnu, en með tilkomu persónuverndarreglugerðarinnar er slík samvinna mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Á fundi ársins fóru fram hnitmiðaðar umræður um sameiginleg áform um eftirlit og ítarlegri ESB-samvinnu og upplýsingaskipti. Yfirlýsingin var undirrituð sem fyrr segir á árlegum fundi norrænna persónuverndarstofnana, sem í ár var skipulagður af sænsku persónuverndarstofnunni og fór fram í Stokkhólmi.

Í yfirlýsingunni eru settar fram ýmsar aðgerðir til að ná markmiði hennar:

  • Norrænu stofnanirnar skuldbinda sig til að vinna saman meðal annars hvað aðgerðir og eftirlit varðar, að skapa tengslanet til að skiptast á upplýsingum um samvinnuna innan EES og að veita persónuverndarfulltrúum stuðning og ráðgjöf.

  • Samvinna stofnananna mun sem fyrr byggja á norrænum gildum og hefðum sem fela í sér virðingu fyrir grundvallarréttindum og frelsi einstaklinga.

Stokkhólmsyfirlýsingin á pdf-sniði.

Forstjórar persónuverndarstofnananna á Norðurlöndunum.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820