Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Meðferð máls vegna hljóðupptöku á Klaustri

6. febrúar 2019

Klaustursmálið er í hefðbundnum farvegi

Vegna fjölda fyrirspurna skal upplýst hvað líður málsmeðferð Persónuverndar vegna erindis af tilefni upptöku á samtölum þingmanna á veitingastaðnum Klaustri. Nú þegar krafa um sönnunarfærslu fyrir dómi er ekki lengur til úrlausnar dómstóla hefur Persónuvernd haldið meðferð málsins áfram. Nánar tiltekið hefur stofnunin óskað eftir því við lögmenn gagnaðila, sem samkvæmt fréttum stóð að upptökunni, að fá hana afhenta og veitt þeim kost á athugasemdum við bréf sem borist hefur frá lögmanni þingmannanna. Þá hefur Persónuvernd óskað eftir því við Klaustur að upptökur úr eftirlitsmyndavélum frá þeim tíma sem upptakan átti sér stað verði afhentar stofnuninni.

Niðurstöðu er fyrst að vænta um næstu mánaðamót.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820