Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kynningarátak Persónuverndar vegna nýrrar persónuverndarlöggjafar

15. október 2018

Persónuvernd mun á næstu vikum halda í kynningarherferð um landið þar sem áhugasömum verður boðið að sækja málþing um nýju persónuverndarlöggjöfina. Upplýsingar um staðsetningu og tíma viðburðanna ásamt skráningarformi má nálgast hér að vefsíðunni.

Í tengslum við kynningarherferðina hefur Persónuvernd útbúið fimm bæklinga um nýju löggjöfina. Í þeim eru teknar saman upplýsingar sem eiga bæði erindi við lítil og meðalstór fyrirtæki sem og almenning - þar á meðal börn og unglinga. Bæklingarnir eru einnig aðgengilegir hér á vefsíðunni.

Þá hefur Persónuvernd tekið saman fræðsluefni fyrir persónuverndarfulltrúa. Í nýjum persónuverndarlögum er sú skylda lögð á stjórnvöld og sum fyrirtæki að ráða persónuverndarfulltrúa, en verkefni þeirra eru einkum að tryggja að fyrirtækið eða stjórnvaldið uppfylli kröfur persónuverndarlaganna. Um er að ræða nýja starfsstétt hérlendis.

Að lokum hefur Persónuvernd sett á fót sérstakt þjónustuborð fyrir fyrirtæki vegna innleiðingar nýrrar persónuverndarlöggjafar. Þjónustuborðið tók til starfa síðastliðið sumar og verður starfrækt í eitt ár. Er það ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem óska leiðbeininga í tengslum við innleiðingu nýju laganna. Þær spurningar sem berast þjónustuborðinu eru jafnframt hafðar til hliðsjónar við ritun fræðsluefnis fyrir fyrirtæki, sem birt er á vefsíðu stofnunarinnar.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820