Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kosningabarátta á samfélagsmiðlum vegna kosninga til Alþingis 2021 – fræðsla

17. september 2021

Persónuvernd hefur gefið út fræðsluefni fyrir kjósendur og þá sem vinna með persónuupplýsingar í tengslum við kosningar.

Í áliti Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2016 og 2017 setti stofnunin fram leiðbeiningar og tillögur til að tryggja að farið yrði að persónuverndarlögum í tengslum við kosningar. Meðal þeirra tillagna var að stjórnmálasamtök myndu vinna að sameiginlegum verklagsreglum í samráði við Persónuvernd, sem tækju mið af ríkri fræðsluskyldu ábyrgðaraðila, til að unnt yrði að tryggja gagnsæi við vinnslu persónuupplýsinga í framtíðinni í tengslum við kosningar.

Þau átta stjórnmálasamtök sem nú eiga sæti á Alþingi hafa samið framangreindar verklagsreglur í samráði við Persónuvernd.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820