Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Fundur EDPB með framkvæmdastjóra hjá ESB

12. júní 2026

Á dögunum fundaði Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) með Michael McGrath, framkvæmdastjóra ESB á sviði lýðræðis, dómsmála, réttarríkis og neytendaverndar.

Til umræðu voru meðal annars fyrirhugaðar breytingar á regluverki stafræna markaðarins, vernd barna, pólitískar auglýsingar, miðlun persónuupplýsinga til þriðju landa og þörfina á nægu fjármagni og mönnun persónuverndaryfirvalda. EDPB lagði áherslu á að einföldun reglna mætti ekki veikja grundvallarréttindi eða vernd persónuupplýsinga.

Á fundinum samþykkti EDPB einnig sameiginlegt evrópskt sniðmát fyrir tilkynningar um öryggisbresti. Markmiðið er að samræma og einfalda tilkynningarferli samkvæmt 33. gr. GDPR, bæði fyrir ábyrgðaraðila og persónuverndaryfirvöld. Sniðmátið á sérstaklega að auðvelda smærri aðilum að senda fullnægjandi og tímanlegar tilkynningar.

Sniðmátið verður í opinberu samráði til 5. ágúst 2026. Að því loknu mun EDPB ákveða hvernig og hvenær það verður innleitt hjá persónuverndaryfirvöldum í Evrópu.

Fréttatilkynning EDPB

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820