Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fundir EDPB í apríl og maí

16. júní 2020

Vegna Covid-19 faraldursins hafa fundir Evrópska persónuverndarráðsins farið fram í gegnum fjarfundarbúnað í apríl og maí. Í stað mánaðarlegra funda skipti ráðið yfir í vikulega fjarfundi. Alls voru á þessum tíma haldnir 11 fjarfundir. Áætlað er að ráðið haldi fjarfundi út júlí í það minnsta. 

Að venju voru fjölmörg atriði á dagskrá ráðsins, en þau helstu voru:

  1. Leiðbeiningar vegna vísindarannsókna á heilbrigðissviði í tengslum við Covid-19. Leiðbeiningarnar voru samþykktar á fundi ráðsins þann 21. apríl 2020. Unnið er að íslenskri þýðingu á leiðbeiningunum.

  2. Leiðbeiningar vegna smitrakningarforrita í tengslum við Covid-19. Leiðbeiningarnar voru samþykktar á fundi ráðsins þann 21. apríl 2020.

  3. Beiðni framkvæmdastjórnarinnar um álit EDPB á drögum að leiðbeiningum um þróun smáforrita til að takast á við Covid-19 faraldurinn. EDPB samþykkti bréf til framkvæmdastjórnarinnar þann 14. apríl 2020.

  4. Uppfærsla á leiðbeiningum um samþykki. Leiðbeiningarnar voru samþykktar á fundi ráðsins þann 4. maí. Breytingarnar fela í sér að í leiðbeiningunum er nú tekið fram að það að fletta áfram á vefsíðu (e. scrolling) feli ekki í sér samþykki fyrir vefkökum og að ekki sé hægt að setja sem skilyrði fyrir áframhaldandi skoðun á vefsíðu (e. cookie wall) að einstaklingur samþykki vefkökur.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820