Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Finnland tekur við formennsku í Evrópska persónuverndarráðinu

25. maí 2023

Í dag fór fram kjör á nýjum formanni Evrópska persónuverndarráðsins (EDPB). Anu Talus (Finnlandi) var kjörin formaður til næstu fimm ára, en hún tekur við af Andreu Jelinek (Austurríki) sem sinnt hefur formannsstörfum frá því að ráðið tók fyrst til starfa 25. maí 2018. Þá var Irene Loizidou Nikolaidou (Kýpur) kjörin nýr varaformaður.

Evrópska persónuverndarráðið er sjálfstæð stofnun innan Evrópusambandsins sem komið var á fót með almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR), sem tók gildi 25. maí 2018, eða fyrir fimm árum. Ráðinu er ætlað að stuðla að samræmdri beitingu persónuverndarreglna á Evrópska efnahagssvæðinu og samvinnu á milli persónuverndarstofnana svæðisins. Persónuvernd á sæti í ráðinu.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820