Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Evrópska persónuverndarráðið auglýsir eftir sérfræðingum til samstarfs

4. mars 2022

Merki - Persónuvernd

EDPB leitar nú að sérfræðingum til að taka þátt í stuðningsteymi sérfræðinga (e. support pool of experts) til að starfa með persónuverndarstofnunum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Teymið mun samanstanda af sérfræðingum frá sem flestum sviðum atvinnulífsins. Því er ætlað að veita persónuverndarstofnunum innan EES ráðgjöf og aðstoða þær við eftirlit.

Meðal annars er leitað eftir sérfræðingum á eftirfarandi sviðum:

Upplýsingatækniendurskoðunar, vefsíðuöryggis, farsímastýrikerfa og smáforrita, interneti allra hluta, tölvuskýja, hegðunarauglýsinga, nafnleyndar- og dulmálsfræða (e. anonymization techniques and cryptology), gervigreindar, UX hönnunar, fjármálatækni (e. Fintech), gagnavísinda, og lögfræði (tölvuréttur, e. digital law) svo eitthvað sé nefnt.

Ef þú hefur áhuga á að vera með í stuðningsteymi EDPB getur þú sent inn umsókn ásamt kynningarbréfi.

Frekari upplýsingar um verkefnið hjá EDPB.

Leiðbeiningar um hvernig senda skuli umsóknina.

Evrópska persónuverndarráðið er sjálfstæð stofnun innan Evrópusambandsins sem komið var á fót með almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR). Ráðinu er ætlað að stuðla að samræmdri beitingu persónuverndarreglna á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og samvinnu á milli persónuverndarstofnana svæðisins. Persónuvernd á sæti í ráðinu.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugarvegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820