EDPB skýrir reglur um afmáningu persónuauðkenna og vefsöfnun
8. júlí 2026
Evrópska persónuverndarráðið, EDPB, hefur samþykkt nýjar leiðbeiningar um afmáningu persónuauðkenna (e. anonymisation) og vefsöfnun (e. web scraping) við þróun gervigreindarlausna.

Leiðbeiningarnar um afmáningu persónuauðkenna skýra hvenær gögn teljast raunverulega nafnlaus. EDPB leggur áherslu á að matið ráðist af samhengi og því hvort hægt sé að einangra færslu, tengja hana við önnur gögn eða draga ályktanir um einstakling. Ef það er mögulegt getur verið um persónuupplýsingar að ræða.
Í leiðbeiningunum um vefsöfnun er fjallað um sjálfvirka söfnun gagna af netinu til þjálfunar gervigreindarlausna. Ráðið minnir á að persónuverndarreglur gilda þegar slík söfnun felur í sér vinnslu persónuupplýsinga, meðal annars reglur um gagnsæi, lágmörkun gagna og nákvæmni.
EDPB samþykkti jafnframt endanlega útgáfu leiðbeininga um vinnslu persónuupplýsinga með bálkakeðjutækni.
Leiðbeiningarnar um afmáningu persónuauðkenna og vefsöfnun verða í opinni samráðsgátt til 30. október 2026.
