EDPB samþykkir álit um Evrópsku einkaleyfastofnunina og framlengingu á jafngildisákvörðun Bretlands
6. maí 2025
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) samþykkti á síðasta fundi sínum álit um drög að ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um jafngildisákvörðun Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar (EPO) samkvæmt persónuverndarreglugerðinni. Ef ákvörðunin verður samþykkt, verður hún sú fyrsta sem nær til alþjóðastofnunar, en ekki ríkis eða svæðis.

Jafngildisákvörðun er lykilþáttur í löggjöf um persónuvernd í Evrópu og felur í sér mat framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að þriðja ríki eða alþjóðastofnun tryggi fullnægjandi vernd persónuupplýsinga. Slík ákvörðun gerir frjálsan flutning persónuupplýsinga frá Evrópu til viðkomandi lands eða stofnunar mögulega.
Evrópska persónuverndarráðið samþykkti einnig álit um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að sex mánaða framlengingu á jafngildisákvörðun Bretlands samkvæmt persónuverndarreglugerðinni og lögregluupplýsingatilskipuninni (LED), þar sem núverandi ákvarðanir renna út 27. júní nk. Framlengingin er sögð tæknileg og tímabundin vegna fyrirhugaðra lagabreytinga í Bretlandi. Ráðið leggur áherslu á að framlengingin verði ekki lengri en nauðsyn krefur og að framkvæmdastjórnin fylgist náið með þróun mála í Bretlandi á meðan.
Að lokum samþykkti Evrópska persónuverndarráðið að veita persónuverndarstofnun Bosníu og Hersegóvínu áheyrnaraðild að starfsemi ráðsins, í samræmi við reglur þess.