Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

EDPB kallar eftir skýrri lagaheimild fyrir miðlun upplýsinga milli eftirlitsaðila

17. júlí 2026

Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur hvatt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins til að leggja til skýra lagaheimild sem geri eftirlitsaðilum á ólíkum sviðum kleift að miðla sín á milli upplýsingum, þar á meðal trúnaðarupplýsingum, vegna eftirlits og framkvæmdar löggjafar.

Á fundi ráðsins í Dyflinni 16. og 17. júlí var jafnframt rætt hvernig efla mætti samræmda og skilvirka framkvæmd persónuverndarreglugerðarinnar. Persónuverndarstofnanir standa frammi fyrir auknum fjölda og flóknari kvörtunum, meðal annars vegna vaxandi notkunar gervigreindar, á sama tíma og fjármagn þeirra er takmarkað.

Ráðið telur að aukin upplýsingamiðlun, sameiginlegar aðgerðir og samnýting mannafla geti bætt samstarf stofnananna og styrkt framkvæmd reglugerðarinnar, sérstaklega í málum sem varða mikinn fjölda einstaklinga. Einnig verða haldnar vinnustofur um málsmeðferð við eftirlit og framkvæmd og miðlun upplýsinga um starfshætti í einstökum ríkjum.

Nánar í fréttatilkynningu EDPB

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820