Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2026

10. febrúar 2026

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag, 10. febrúar.

Í dag er haldið upp á Alþjóðlega netöryggisdaginn í 23. skiptið í yfir 160 löndum. Árlegt yfirþema dagsins er „Saman í þágu betra internets“ en þema ársins 2026 er „Snjöll tækni, öruggar ákvarðanir – örugg og ábyrg notkun gerivgreindar“ og munu þjóðir heimsins standa fyrir fjölbreyttri dagskrá.

Á Íslandi er dagurinn skipulagður af Netvís, miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi, sem heyrir undir Fjölmiðlanefnd. Netvís hefur það hlutverk að styðja við stefnu Evrópusambandsins, Better Internet for Kids.

Í tilefni dagsins stóð Netvís fyrir opnum foreldrafundi á netinu, milli kl. 12-13, og þá fer fram málþing í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 15:00 undir yfirskriftinni Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna.

Persónuvernd vill einnig benda á nýútgefið fræðsluefni Netvís sem heitir Verkfærakista foreldra þar sem hægt er að finna samantektir um samfélagsmiðla, fjölskyldustillingar, öryggi og tilkynningaleiðir. Frekari upplýsingar um netöryggisdaginn er að finna á saferinternetday.org.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820